5. júlí 2019 13:19
Auðarskóli - Tónlistakennari
Við Auðarskóla er laus 100% staða tónlistakennara við tónlistadeild skólans frá og með 1. ágúst 2019.
Mikilvægt er að umsækjendur búi að færni í samskiptum, frumkvæði í starfi, sjálfstæðum og skipulögðum vinnubrögðum, auk góðrar íslenskukunnáttu.
Umsækjendur þurfa að hafa leyfisbréf til þess að kenna í grunnskóla. Umsóknir um starfið berist á netfangið hlodver@audarskoli.is. Í umsókninni þurfa að vera ferilskrá og ábendingar um meðmælendur.
Upplýsingar um starfið veitir Hlöðver Ingi skólastjóri í síma 430 4757.
Umsóknarfrestur er til 18. júlí 2019.