Umhverfis-og skipulagsnefnd, fundur nr. 95
Dags. 9.8.2019
95. fundur Umhverfis- og skipulagsnefndar Dalabyggðar haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, 9. ágúst 2019 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu:
Hörður Hjartarson, Bjarnheiður Jóhannsdóttir, Ragnheiður Pálsdóttir, Vilhjálmur Arnórsson, Jón Egill Jónsson, Kristján Sturluson, Þórður Már Sigfússon og Grettir Örn Ásmundarson.
Fundargerð ritaði: Bjarnheiður Jóhannsdóttir,
Dagskrá:
1. Val á verktaka vegna aðalskipulagsvinnu - 1908001
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að vinna við gerð aðalskipulags verði boðin út með örútboði innan rammasamnings Ríkiskaupa.
Samþykkt samhljóða.
5. Umsókn um framkvæmdaleyfi - skógrækt - 1906010
Tilkynning um skógræktarsamning á jörðinni Neðri-Hundadalur - 137953
Erindi samþykkt með fyrirvara um að afriti af samningi við Skógræktina verði skilað til skipulagsfulltrúa, samþykki landeigenda aðliggjandi jarða liggi fyrir og umsögn Minjastofnunar.
6. Ósk um breytingu á 3 lóðum úr landi Sælingsdals - 137739 - 1906021
Ríkiseignir óskar eftir breytingum á þremur lóðum úr landi Sælingsdal, lnr. 137739, í Dalabyggð. Um er að ræða hnitsetningu lóðanna, breyttar stærðir og breytt nöfn lóðanna til aðgreiningar.
Nefndin gerir ekki athugasemdir við erindið.
7. Heinaberg á Skarðströnd - umsókn um byggingaráform - 1908002
Nefndin gerir ekki athugasemdir.
4. Stefna í úrgangsmálum - 1907008
Nefndin bendir á að tímaáætlun framkvæmdar er fremur knöpp.
8. Hvítidalur lóð 1A - umsókn um byggingarleyfi - 1908003
Nefndin gerir ekki athugasemdir.
9. Breyting á aðalskipulagi Reykhólahrepps 2006-2018 - 1906016
Sveitarfélagið Reykhólahreppur óskar eftir umsögnum og athugasemdum vegna breytingatillögu og er athugasemdarfrestur til sunnudagsins 25. ágúst 2019.
Nefndin gerir ekki athugasemdir.
2. Iðnaðarsvæði fyrir vindlund á jörð Sólheima - 1902037
Lagt fram til kynningar.
3. Iðnaðarsvæði fyrir vindlund á jörð Hróðnýjarstaða - 1811005
Lagt fram til kynningar.
10. Landshlutaáætlanir í skógrækt og lykilhlutverk sveitarfélaga í loftslagsmálum - 1906013
Nefndin fagnar bréfi Skógaræktarinnar og óskar eftir að fá að sitja komandi fund.
11. Kæra á ákvörðun Skipulagsstofnunar um að breikkun Vesturlandsvegar - 1907004
Lagt fram til kynningar.
12. Tilmæli Örnefnanefndar vegna enskra nafna á íslenskum stöðum - 1907003
Nefndin tekur undir erindið.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:00
Til baka