Byggðarráð, fundur nr. 235
Dags. 28.10.2019
235. fundur Byggðarráðs Dalabyggðar haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, 28. október 2019 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu:
Skúli Hreinn Guðbjörnsson formaður, Sigríður Huld Skúladóttir varaformaður, Ragnheiður Pálsdóttir varamaður og Kristján Sturluson sveitarstjóri.
Fundargerð ritaði: Kristján Sturluson, sveitarstjóri
Dagskrá:
1. Fjárhagsáætlun 2020-2023 - 1903025
Tillaga að fjárhagsáætlun.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að leggja fyrirliggjandi drög að tillögu til fjárhagsáætlunar fyrir fund sveitarstjórnar þann 30. október næstkomandi.
Ingibjörg Jóhannsdóttir aðalbókari sat fundinn undir dagskrárlið 1.
2. Samgöngumál - samgönguáætlun - 1810014
Frestað frá síðasta fundi byggðarráðs (24.10.2019).
Sveitarstjóra falið að senda umsögn í samráðsgátt í samræmi við fyrirliggjandi drög og umræður á fundinum.
Samþykkt samhljóða.
3. Stofnun húsnæðissjálfseignarstofnunar - 1809019
Málinu frestað.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:00
Til baka