Byggingarfulltrúi

Skipulags- og byggingarmál.

Grettir Örn Ásmundsson er byggingafulltrúi fyrir Árneshrepp, Dalabyggð, Kaldrananeshrepp, Reykhólasveit og Strandabyggð.

Byggingafulltrúi er með starfsstöð á skrifstofu Strandabyggðar, en með viðveru á skrifstofu Dalabyggðar alla föstudaga ásamt fyrsta og þriðja miðvikudag í mánuði og á skrifstofu Reykhólahrepps fyrsta fimmtudag í mánuði. Með fyrirvara um veður og færð.

Sími byggingafulltrúa er 451 3517 (á milli kl. 10 – 14) og netfangið er byggingafulltrui@strandabyggd.is.

Embætti byggingarfulltrúa er starfrækt samkvæmt skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997 og reglugerðum þeim tengdum.

Óheimilt er, samkvæmt skipulags- og byggingarlögum, að grafa grunn, reisa hús, rífa hús, breyta því, burðarkerfi þess, formi, svipmóti eða notkun þess eða gera önnur mannvirki, nema að fengnu leyfi viðkomandi sveitarstjórnar.

Framkvæmdir skulu vera í samræmi við staðfest aðalskipulag og samþykkt deiliskipulag. Byggingarleyfi felur í sér samþykkt aðaluppdrátta og framkvæmdaáforma eða samþykkt á breyttri notkun húss.

Auk útgáfu byggingarleyfa annast embættið yfirferð og samþykkt séruppdrátta, úttektir, samþykkt á byggingarstjórum, skráningu iðnmeistara á verk, fasteignaskráningu, yfirferð eignaskiptayfirlýsinga og gefur umsagnir vegna starfs- og veitingaleyfa.

Þá varðveitir byggingarfulltrúi uppdrætti af húsum í sveitarfélaginu og geta allir fengið ljósrit af þeim gegn hóflegu gjaldi.

Byggingafulltrúi veitir fúslega faglegar ráðleggingar bæði í viðtals- og símatímum.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei