Umsóknarfrestur í Matsjánna 2022 til 20. nóvember

DalabyggðFréttir

Umsóknarferlið í Matsjána er í fullum gangi. Umsóknarfrestur er til 20. nóvember næstkomandi.

Verkefnið er ætlað smáframleiðendum matvæla sem vilja efla leiðtogafærni sína, öðlast aukna getu til að þróa vörur og þjónustu og efla tengslanetið sitt í greininni.
Matsjáin fer fram á 14 vikna tímabili frá 6. janúar til 7. apríl og samanstendur af sjö lotum með heimafundum/jafningjaráðgjöf, fræðslu og erindum, verkefnavinnu og ráðgjöf.
Verkefnið fer fram á netinu þvert á landið og lýkur með veglegri uppskeruhátíð þar sem þátttakendur hittast í raunheimi.

Verkefnið hlaut styrk úr Matvælasjóði og er byggt upp að fyrirmynd Ratsjárinnar sem er verkefni fyrir stjórnendur í ferðaþjónustu þróað af Íslenska ferðaklasanum. Samtök smáframleiðanda matvæla og landshlutasamtök sveitarfélaga um land allt standa að Matsjánni en verkefnisstjórn er í höndum RATA.

,,Eitt af megin markmiðum Samtaka smáframleiðenda matvæla er að hámarka ávinning félagsmanna af aðild og lykil áhersluverkefni að auka þekkingu og þróa verkfæri sem geta nýst þeim í þeirra rekstri. Við sóttum því um styrk í Matvælasjóð til að bjóða upp á metnaðarfullt fræðsluverkefni í samstarfi við landshlutasamtökin – sem myndi einnig stuðla að auknu samstarfi og samtakamætti smáframleiðenda matvæla um land allt sem er einmitt megintilgangur samtakanna. Við erum stolt af því að geta stutt við bakið á okkar félagsmönnum og bjóðum alla aðra smáframleiðendur sem vilja slást í hópinn velkomna.” (Oddný Anna Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka smáframleiðenda matvæla)

Matsjáin mun snerta á helstu áskorunum sem smáframleiðendur matvæla standa frammi fyrir í dag en endanleg dagskrá mun vera unnin í samstarfi við þátttakendur sem geta með kosningu haft áhrif á þá fræðslu sem boðið verður upp á.
Listi yfir möguleg umfjöllunarefni er að finna inn í umsóknarforminu hér.

Meðal ávinninga af þátttöku má nefna að efla fókus í starfsemi og framleiðsluferli, öðlast ný verkfæri og þekkingu, aukin leiðtogafærni, koma auga á ný viðskiptatækifæri og aukið tengslanet og mögulegt samstarf meðal þátttakenda.

Umsóknarfrestur er til 20. nóvember og verkefnið hefst með kynningarfundi 2. desember kl. 15:00.
Matsjáin hefst svo formlega 6. janúar og lýkur 7. apríl.

Þátttökugjald í Matsjánni er kr. 30.000, innifalið er gjaldfrjáls aðild að SSFM fyrir árið 2022. Þátttökugjald í Matsjánni fyrir núverandi félagsmenn SSFM er 15.000 kr.

Umsóknina má nálgast hér:Umsókn í Matsjána 2022

Frekari upplýsingar veitir Thelma Harðardóttir, verkefnastjóri Áfangastaða – og Markaðsstofu Vesturlands / thelma@west.is / sími: 847-8061

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei