Dagskrá Félags eldri borgara í Dalabyggð og Reykhólahreppi næstu viku, 22.-28. febrúar.
Mánudagur
Gönguhópurinn fer frá Samkaupum kl. 10:30 og kaffisopi er að göngu lokinni á Silfurtúni.
Kóræfing kl. 17 í húsnæði tónlistarskólans í Dalabúð.
Þriðjudagur
Kaffisopi kl. 10:30 á Silfurtúni.
Sælingsdalslaug kl. 15:30. Sameinast er í bíla og farið er frá Rauðakrosshúsinu kl. 15:15.
Miðvikudagur
Tækjasalur Ólafs páa er opinn fyrir félaga kl. 11:45-12:45 á miðvikudögum fyrir eldri borgara.
Fimmtudagur
Spurningakeppni og kaffi í Leifsbúð kl. 13:30-16:00. Kaffi og með því kostar 500 kr.
Föstudagur
Gönguhópurinn fer frá Samkaupum kl. 10:30 og kaffisopi er að göngu lokinni á Silfurtúni.
Félag eldri borgara er opið 60 ára og eldri og mökum þeirra, þó þeir séu yngri. Ýmis fríðindi fylgja félagsaðild, þ.e. afsláttur hjá mörgum verslunum og þjónustu, bensíni og fleira. Nýir félagar eru velkomnir og bent á að hafa samband við Þrúði Kristjánsdóttur í síma 434 1124 eða 894 1824.