Laus störf: Sjúkraliði og aðhlynning á Silfurtúni

Dalabyggð Fréttir

SJÚKRALIÐI – AFLEYSING

Laust er til umsóknar afleysingarstarf sjúkraliða á Silfurtúni. Um er að ræða vaktavinnu í fullu starfi og/eða í hlutastarfi. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem á auðvelt með samskipti og að vinna með öðru fólki. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Leyfisbréf er skilyrði.

STARF VIÐ AÐHLYNNINGU – AFLEYSING

Laust er til umsóknar starf í aðhlynningu á Silfurtúni. Um er að ræða vaktavinnu í fullu starfi og/eða í hlutastarfi. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem á auðvelt með samskipti og að vinna með öðru fólki. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Reynsla af aðhlynningu er æskileg.

Upplýsingar um störfin veitir Haflína Ingibjörg Hafliðadóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 430 4770 eða með tölvupósti, netfangið er silfurtun@dalir.is.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei