Óskað er eftir starfsfólki á Silfurtún sem getur tekið að sér aðhlynningu og ræstingar á heimilinu í afleysingum sem og sumarið 2022.
Á heimilinu eru 13 íbúar og starfsmenn eru um 12.
Upplýsingar um störfin veitir Haflína Ingibjörg Hafliðadóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri, netfangið er silfurtun@dalir.is.
Umsóknarfrestur er til og með 20. mars 2022 og ráðið er í störfin eftir samkomulagi.
Umsóknir skal senda í tölvupósti á netfangið silfurtun@dalir.is.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Óskað er eftir starfsfólki bæði í afleysingar og sumarstörf við aðhlynningu.
Um er að ræða vaktavinnu í fullu starfi og/eða í hlutastarfi.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingum sem eiga auðvelt með samskipti og að vinna með öðru fólki.
Reynsla af aðhlynningu er æskileg.
Óskað er eftir starfsmanni í sumarstarf við ræstingar.
Um er að ræða 50% starf, vinnutíma er frá kl. 8 til 12.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem á auðvelt með samskipti og að vinna með öðru fólki.
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt.