Starfsmaður í félagslega heimaþjónustu

DalabyggðFréttir

Dalabyggð óskar eftir að ráða starfsmann í félagslega heimaþjónustu, þarf að geta hafið störf um miðjan apríl. Um er að ræða starf sem snýr að almennum heimilisþrifum samkvæmt þjónustusamningi sem gerður hefur verið við notendur á heimilum þeirra.

Mikilvægt er að viðkomandi starfsmaður hafi áhuga og ánægju af mannlegum samskiptum. Æskilegt væri að viðkomandi hafi reynslu af því að starfa með fólki.

Hæfniskröfur eru lipurð í mannlegum samskiptum, vandvirkni og sjálfstæði í starfi, bílpróf, íslenskukunnátta og hreint sakarvottorð.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsnessýslu. Um er að ræða u.þ.b. 20% starf fyrir þjónustuþega í Búðardal og nágrenni.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnheiður Pálsdóttir deildarstjóri heimaþjónustu í síma 849 2725 eða í tölvupósti á netfangið heima.tjonusta@gmail.com.

Umsóknum skal skila á skrifstofu Dalabyggðar á umsóknarblöðum sem þar fást. Eyðublöð eru einnig aðgengileg á vef Dalabyggðar. Umsóknarfrestur er til 20. mars næstkomandi.

Heimaþjónusta hjá Dalabyggð

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei