| |
1. 2206028 - Kosning varaformanns umhverfis- og skipulagsnefndar | Lagt til að Jón Egill Jónsson verði varaformaður nefndarinnar. Samþykkt samhljóða. | | |
|
2. 2206031 - Erindisbréf umhverfis- og skipulagsnefndar | |
Farið yfir erindsbréf nefndarinnar.
Rætt um fundartíma nefndarinnar. Ákveðið að funda fyrsta miðvikudag í mánuði kl. 16:00. | Erindisbréf UMSKIP samþykkt.pdf | | Viðar Þór Ólafsson mætir til fundar kl. 16:20.
| |
|
3. 2205021 - Auglýsingaskilti á lóðinni Miðbraut 15 í Búðardal | |
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið enda er auglýsingaskilti sömu stærðar nú staðsett á sama stað. Jafnframt gerir Vegagerðin ekki athugasemdir við umsóknina því fyrirhugað auglýsingaskilti verður ekki staðsett nær vegi en nústandandi skilti. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samráði við lóðareiganda. Samþykkt samhljóða. | Ljósaskilti.pdf | Lóðaruppdr_Miðbraut 15 (1).pdf | Umsögn frá Vegagerðinni.pdf | | |
|
4. 2206011 - Eldsneytisgeymir við rafstöð RARIK | |
Skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið en bendir á það vantar fullnægjandi gögn í samræmi við reglugerð nr. 884/2017 um varnir gegn olíumengun frá starfsemi á landi.
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands gerir ekki athugasemdir við að eldsneytisgeymirinn verði staðsettur þarna til bráðabirgða en telur þó mikilvægt að fyrir liggji upplýsingar um hvernig áfylling fer fram og hvort það er yfirfyllivörn á tankinum. Auk þess þarf að skoða þætti sem viðkoma viðbragði aðila ef tankurinn rofnar og olía flæðir út í ytra byrðið. Jafnframt kallar heilbrigðiseftirlitið eftir því að fá að sjá viðbragðsáætlun Rarik í tengslum við elds- og slysavarnir.
Slökkviliðsstjóri Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda gerir athugasemdir við staðsetningu geymisins með tilliti til krafna er lúta að þessari starfsemi í byggingarreglugerð, gr. 9.6.4. um olíugeyma og olíuskiljur.
Nefndin vísar í leiðbeiningar Hús- og mannvirkjastofnunar um olíugeyma og olíuskiljur þar sem fram kemur að aldrei skal vera minni fjarlægð en 2,5 metrar frá húsi nema húsveggurinn sé með brunamótstöðu minnst EI60, án glugga og annarra opa. Þá skulu klæðningar á útvegg vera í flokki 1. Útveggurinn sem snýr að fyrirhugðum geymi er glugggalaus og án annarra opa og þá eru klæðningar hans í flokki 1. Því er ekki þörf á að flytja hann fjær húsinu. Jafnframt er leikskóli staðsettur á aðliggjandi lóð til suðausturs sem hamlar mjög annarri staðsetningu geymisins.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt en stöðuleyfi verði ekki gefið út fyrr en fullnægjandi gögn hafa borist og þau gefi ekki tilefni til breytinga þ.e. að þau verði í samræmi við reglugerð nr. 884/2017 um varnir gegn olíumengun frá starfsemi á landi. Einnig er skipulagsfulltrúa falið að grendarkynna stöðuleyfið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hvetur sveitarstjórn til að kalla eftir framtíðaráformum RARIK um varaafl í sveitarfélaginu.
Samþykkt samhljóða.
| Umsókn Eldsneytisgeymir.pdf | Tankur 20 m3.pdf | Afsataða eldsneytisgeymis.pdf | 20220529_143515.pdf | 20220529_143454.pdf | 20220529_143428.pdf | Umsögn Slökkviliðsstjóra Miðbraut - Eldsneytisgeymir Miðbraut RARIK.pdf | Umsögn frá HEV.pdf | | |
|
5. 2206012 - Stofnun lóðar (Ljárskógarströnd 1) úr landi Ljárskóga L137576 | |
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar, þar sem hún samræmist gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið. Gerður er fyrirvari um að aðalæð Vatnsveitu Dalabyggðar frá Svínadal í Búðardal liggur um svæðið. Samþykkt samhljóða. | Uppdráttur Ljárskógar.pdf | | |
|
6. 2206018 - Stofnun lóðar (Gautland 2) úr landi Gautastaða | |
Nefndin gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar. Samþykkt samhljóða. | Gautastaðir, Dalasýslu 6.pdf | | |
|
| |
7. 2206036 - Umsókn um byggingarleyfi | |
Lagt fram til kynningar. | 2.pdf | | |
|
8. 2206037 - Umsókn um byggingarleyfi | |
Lagt fram til kynningar. | aðaluppdrættir 6.pdf | aðaluppdrættir 5.pdf | | |
|