| |
1. 2003041 - Sólheimar - breyting á aðalskipulagi vegna vindorkuvers | |
Á fundi sveitarstjórnar þann 14.11.2019 var samþykkt að vinna að aðalskipulagsbreytingu vegna breyttrar landnotkunar í landi Sólheima í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga. Lýsing vegna breytinganna hefur þegar verið samþykkt. Umsagnir þar til bærra aðila liggja fyrir og hefur verið haldinn íbúafundur þar sem breytingarnar voru kynntar.
Nú er lagður fram uppdráttur og greinargerð sem sýnir tillögu að aðalskipulagsbreytingunni.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagðan uppdrátt/greinargerð og að hann skuli auglýstur í samræmi við 31.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar honum til staðfestingar í sveitarstjórn.
Jafnframt vill nefndin koma því á framfæri við sveitarstjórn að íhugað verði að láta framkvæma viðhorfskönnun meðal íbúa í Dalabyggð gagnvart nýtingu vindorku til raforkuvinnslu í sveitarfélaginu. | | Kristján Sturluson, sveitarstjóri, sat fundinn undir þessum lið en vék af fundi kl. 14.
| |
|
2. 2003042 - Hróðnýjarstaðir - breyting á aðalskipulagi vegna vindorkuvers | |
Á fundi sveitarstjórnar þann 14.11.2019 var samþykkt að vinna að aðalskipulagsbreytingu vegna breyttrar landnotkunar í landi Hróðnýjarstaða í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga. Lýsing vegna breytinganna hefur þegar verið samþykkt. Umsagnir þar til bærra aðila liggja fyrir og hefur verið haldinn íbúafundur þar sem breytingarnar voru kynntar.
Nú er lagður fram uppdráttur og greinargerð sem sýnir tillögu að aðalskipulagsbreytingunni.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagðan uppdrátt/greinargerð og að hann skuli auglýstur í samræmi við 31.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar honum til staðfestingar í sveitarstjórn.
Jafnframt vill nefndin koma því á framfæri við sveitarstjórn að íhugað verði að láta framkvæma viðhorfskönnun meðal íbúa í Dalabyggð gagnvart nýtingu vindorku til raforkuvinnslu í sveitarfélaginu. | | |
|
3. 2006001 - Deiliskipulag í landi Haukabrekku | |
Nefndin tekur jákvætt í erindið og mælist til að sveitarstjórn samþykki að unnin verði tillaga að deiliskipulagi, í samræmi við 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Heimilt verði að vinna tillöguna án skipulagslýsingar þar sem meginforsendur liggja fyrir í aðalskipulagi. | | |
|
Kristján Sturluson sveitarstjóri og Kristján Ingi Arnarsson, umsjónarmaður framkvæmda, sátu fundinn að hluta undir þessum lið.
| 4. 1911005 - Klofningur, áningastaður - hönnun og undirbúningur | |
Lagðar fram til kynningar fimm tillögur frá Landlínum að áningar- og útsýnisstað við Klofning. Nefndin fagnar verkefninu en leggur áherslu á að tryggja þarf aðgengi og útsýnismöguleika fatlaðra í endanlegri útfærslu verkefnisins. Jafnframt að haft verði samráð við Vegagerðina vegna vegtenginga við bílastæðin og að staðsetning bílastæða verði betur nýtt og rask lágmarkað. Mikilvægt er að haft verði samráð við landeigendur á öllum stigum málsins. | | |
|
| |
5. 2005039 - Landvarsla við Breiðafjörð 2020 | |
Nefndin fagnar landvörslunni en bendir jafnframt á að í umfjöllun um Dalabyggð eru bæði rangfærslur og úreltar upplýsingar. | | |
|
6. 2006007 - Litli-Langidalur - Umsókn um byggingarleyfi fyrir breyttu útliti og breyttri notkun húss | |
Nefndin fagnar uppbyggingunni og felur byggingarfulltrúa að ganga í málið. | | |
|
7. 2006008 - Lækjarhvammur 1 - Umsókn um byggingarleyfi | |
Nefndin felur byggingarfulltrúa að ganga í málið. | | |
|