| |
1. 2304017 - Umsögn um Klofningsveg (590) | |
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að nægjanlega sé gerð grein fyrir framkvæmdinni, umhverfi hennar, líklegum áhrifum á umhverfisþætti og mótvægisaðgerðum. Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum framkvæmda skv. lögum nr. 111/2021 að teknu tilliti til viðmiða í 2. viðauka laganna. Sveitarfélagið er leyfisveitandi þegar kemur að byggingar- og framkvæmdaleyfum og fer með skipulagsvald á svæðinu. Samþykkt samhljóða.
| Klofningsvegur (590) Dalabyggð, greinargerð MÁU.pdf | Teikningar með tilkynningu v. Klofningavegar (590) Dalabyggð.pdf | | |
|
2. 2205022 - Umsókn um landskipti út úr jörðinni Hróðnýjarstaðir L137568 | |
Skipulagsnefnd Dalabyggðar leggur til við sveitarstjórn að samþykkja landskiptin skv. meðfylgjandi landskiptagerð. | 20221217 LANDSKIPTAGERÐ HRÓÐNÝJARSTAÐIR Í DALABYGGÐ.pdf | 20221219 Hróðnýjarstaðir beiðni um landskipti.pdf | | |
|
3. 2002053 - Endurskoðun Aðalskipulags Dalabyggðar | |
Skipulagsstofnun bendir í bréfi sínu á atriði sem þarf að bregðast við áður en stofnunin staðfestir aðalskipulagið. Þau snúa öll að lagfæringum á greinargerð til að skerpa á ákvæðum um m.a. landbúnaðarsvæði, skógrækt, efnistöku og frístundabyggð auk almennra ábendinga um texta og framsetningu. Skipulagsnefnd hefur farið yfir bréf Skipulagsstofnunar og leggur til að skipulagsgögnin verði lagfærð í samræmi við ábendingar Skipulagsstofnunar, sbr. minnisblað Verkís. | | |
|
4. 2207022 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna skógræktar - Ljárskógar | |
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að veita framkvæmdaleyfi til skógræktar í landi Ljárskóga sbr. umsókn og meðfylgjandi greinargerð umsækjenda dags. 25. apríl 2023 og að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:
Skógræktin skerði ekki votlendi og vistgerðir sem njóta sérstakrar verndar skv. 61. gr laga um náttúruvernd nr. 60/2013. Ræktunaráætlun geri grein fyrir slíkum verndarsvæðum.
Í ræktunaráætlun verði gerð grein fyrir fornleifum og helgunarsvæðum þeirra skv. fornleifaskráningu.
| Umsögn Ljárskógar.pdf | Umsögn UST um framkvæmdaleyfi fyrir 197,7 ha skógrækt.pdf | Ljárskógar greinargerð.pdf | | |
|
5. 1008003 - Aðalskipulag Strandabyggðar 2010 - 2022 | |
Skipulagsnefnd telur skipulagslýsinguna greinargóða varðandi fyrirhugaða skipulagsvinnu í tengslum við áform um Kvíslatunguvirkjun og gerir ekki athugasemdir við lýsinguna. | Kvíslatunguvirkjun. Skipulagslýsing. Strandabyggð.5.4.2023.pdf | | |
|
6. 2304013 - Umsókn um vegsvæði í landi Hofakurs | |
Skipulagsnefnd samþykkir umsóknina. | Umsókn.pdf | | |
|
7. 2305007 - Umsókn um stofnun lóðar í Haukabrekku | |
Skipulagsnefnd samþykkir umsóknina enda sé hún samkvæmt gildandi deiliskipulagi. | 8885-001-DSK-001-V03 Haukabrekka Endanlegt.pdf | 8885-001-DSK-002-V01 Haukabrekka Endanlegt.pdf | Haukabrekka lod H.pdf | | |
|
Guðlaug tók ekki þátt í afgreiðslu 8. liðar.
| 8. 2305006 - Umsókn um byggingarleyfi | |
Skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að afla gagna ef þörf er og veita heimild til framkvæmda. Farið hefur fram kynning fyrir nágrönnum og þeir samþykkt, sbr. uppákriftir, og því þarf ekki að fara í grenndarkynningu. | Sunnubraut 15.pdf | Lodarblad_Sunnubraut_15.pdf | | |
|
9. 2305009 - Umsókn um byggingarleyfi | |
Skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að afla gagna ef þörf er og veita heimild til framkvæmda að nauðsynlegum skilyrðum uppfylltum m.t.t matvælaframleiðslu. | Miðskógur.pdf | | |
|