| |
1. 1909027 - Skólastarf Auðarskóla 2019-2020 | Bergþóra Jónsdóttir og Herdís Erna Gunnarsdóttir kynna læsisstefnuna og er hún samþykkt samhljóða af nefndarmönnum.
Hlöðver fer yfir skólastarfið. Vel gengur með snjalltækjabannið í skólanum og virðist það leggjast ágætlega í alla, foreldra/forráðamenn og börn. Til að geta miðlað upplýsingum til foreldra/forráðamanna nemenda um til dæmis viðburði og fleira þá væri æskilegt að heimasíða skólans og þá jafnframt sveitarfélagsins kæmist í lag.
Samþykkt samhljóða
| | |
|
2. 2001054 - Skóladagatöl 2020 - 2021 | Hlöðver fer yfir fyrsta uppkast af skóladagatölunum. Lokaútgáfa verður lögð fyrir fund Fræðslunefndar í mars.
Samþykkt samhljóða
| | |
|
3. 2001055 - Tómstundastarfið 2019 - 2020 | Jón Egill Jónsson kemur inn á fundinn og fer yfir tómstundastarfið.
Fræðslunefnd bendir á mikilvægi þess að setja tómstundastarfið í stundaskrá. Einnig er mikilvægt að foreldrar/forráðamenn skrái börn sín í þá tómstundagrein sem þau ætla að taka þátt í yfir veturinn hjá umsjónaraðila.
Samþykkt samhljóða
Hlöðver víkur af fundi eftir lið 3.
| | |
|
4. 2001056 - Íþrótta- og tómstundastefna Dalabyggðar | Fræðslunefnd mun fara yfir stefnuna og vera komin með drög á næsta fundi nefndarinnar. Samþykkt samhljóða
Jón Egill Jónsson sat fundinn undir lið 3 og 4.
| | |
|
5. 2001024 - Reglur um styrki til tónlistarnáms utan sveitarfélagsins | |
Fræðslunefnd gerir engar athugasemdir við drögin.
Samþykkt samhljóða.
Kristján Sturluson, sveitarstjóri, sat fundinn undir lið 5.
| | |
|
| |
6. 2001043 - Styrkur vegna endurmenntunarverkefna 2020-2021 | |
Lagt fram til kynningar.
| | |
|