| |
Kristján Ingi Arnarsson umsjónarmaður framkvæmda sat fundinn undir lið 1.
| 1. 2304023 - Framkvæmdir 2023 | |
Farið yfir atriði sem tekin voru fyrir á stöðufundi framkvæmda hjá starfsfólki Dalabyggðar til að upplýsa byggðarráð um stöðu framkvæmda.
Lagt til að sveitarstjóri hafi heimild til að ganga frá samningi vegna grassláttar í samræmi við umræður á fundinum. Samþykkt samhljóða.
| | |
|
2. 2301013 - Rekstur Silfurtúns 2023 | |
Lagt til að sveitarstjóra sé falið að eiga samtal við Heilbrigðisráðuneytið vegna stöðu mála, í samræmi við umræður á fundinum. Samþykkt samhljóða. | | |
|
3. 2101017 - Samstarfssamningur við Félag eldri borgara í Dalabyggð og Reykhólahreppi 2021-2023 | |
Dalabyggð heldur áfram samtali um möguleika á nýtingu húsnæðis sveitarfélagsins fyrir starf félagsins. | | |
|
4. 2302006 - Félagslegar íbúðir | |
Lagt til að íbúðir Dalabyggðar í Stekkjahvammi verði færðar yfir á almennan rekstur, íbúð Dalabyggðar að Sunnubraut fari í söluferli og íbúðir fyrir eldri borgara við Silfurtún fari undir félagslegar íbúðir. Samþykkt samhljóða. | | |
|
5. 2301018 - Vínlandssetur 2023 | |
Rætt um stöðu mála á rekstri Vínlandsseturs. | | |
|
Herdís Erna Gunnarsdóttir skólastjóri Auðarskóla, kemur inn á fundinn undir dagskrárlið 6.
| 6. 2305018 - Innkaup Dalabyggðar, verktakar og vörur | |
Lagt til að sveitarstjóri vinni að útboði á rekstri mötuneytis Auðarskóla í samræmi við innkaupareglur Dalabyggðar og umræður á fundinum. Samþykkt samhljóða.
Lagt til að sveitarstjóri taki saman starfsprósentu við þrif í húsnæði Dalabyggðar (m.a. skrifstofu og grunnskóla) og skoði útfærslu á starfi við þrif. Samþykkt samhljóða. | | |
|
7. 2305017 - Íþróttamannvirki í Búðardal 2023 | |
Rætt um stöðu mála. | | |
|
8. 1904034 - Úrgangsþjónusta - samningur 2021 - 2023 | |
Lagt til að sveitarstjóri tilkynni þjónustuaðila um vilja Dalabyggðar til að framlengja samning um úrgangsþjónustu um eitt ár. Samþykkt samhljóða. | | |
|
9. 2302001 - Skilti og merkingar í Dalabyggð 2023 | |
Í samræmi við minnisblaði verði kallað eftir fulltrúa frá Vegagerðinni, fulltrúi menningarmálanefndar verði Alexandra Rut Jónsdóttir og sveitarstjóri verði fulltrúi sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða. | | |
|
10. 2301067 - Starfsumhverfi skipulags- og byggingarmála | |
Rætt um stöðu mála. Umhverfis- og skipulagsnefnd mun einnig fjalla um málið á sínum næsta fundi. | | |
|
11. 2302009 - Safnamál Dalabyggðar 2023 | |
Rætt um stöðu safnamála eftir framlagða greinargerð vinnuhóps. | | |
|
12. 2305021 - Umsókn um grunnskólanám utan lögheimilisveitarfélags | Samþykkt í samræmi við framlögð gögn, fært í trúnaðarbók. | | |
|
| |
13. 2305012 - Bréf EFS til sveitarfélaga um almennt eftirlit á árinu 2023 | |
Lagt fram til kynningar. | | |
|