Fundargerð ritaði: Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri
Sveitarstjórnarfulltrúar sátu fundinn sem gestir.
Dagskrá:
Almenn mál
1. 2302013 - Ársreikningur Dalabyggðar 2022
Endurskoðandi sveitarfélagsins mætir á fundinn og fer yfir ársreikninginn.
Sigurjón Ö. Arnarson endurskoðandi sveitarfélagsins fór yfir ársreikning og drög að endurskoðunarbók.
Byggðarráð staðfestir reikninginn, áritar hann og vísar til sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða. Magnína Kristjánsdóttir fjármálastjóri og Ingibjörg Jóhannsdóttir aðalbókari sátu fundinn undir dagskrárliðnum.