| |
1. 2104020 - Haukabrekka, deiliskipulag | |
Skipulagsnefnd leggur til að sveitarstjórn samþykki fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi Haukabrekku og að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá skipulagsgögnum til auglýsingar skv. lögbundnu auglýsingaferli sbr. 41. gr. skipulagslaga.
Fallið verði frá því að gera skipulagslýsingu fyrir verkefnið þar sem nú þegar er deiliskipulag í gildi fyrir svæðið. | 8885-001-DSK-001-V01 Haukabrekka-tillaga.pdf | 8885-001-DSK-001-V02 Haukabrekka.pdf | | |
|
2. 2008010 - Skógrækt á jörðinni Ásgarði í Hvammssveit | |
Í svarbréfi dags. 30. apríl 2021 gerir eigandi Ásgarðs athugasemdir við afgreiðslu 202. fundar sveitarstjórnar þar sem óskað var eftir ítarlegri gögnum varðandi framkvæmdina en hann telur afgreiðsluna ganga í berhögg við afgreiðslu sveitarstjórnar þann 10. desember 2020.
Á fundi sveitarstjórnar þann 10. desember 2020 var staðfest bókun frá 110. fundi umhverfis- og skipulagsnefndar þess efnis að skógrækt væri leyfileg á svæðinu þar sem framkvæmdin falli undir flokk II og III með tilliti til nýrrar flokkunar á landbúnaðarlandi í drögum að endurskoðun á Aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2006. Einnig var bókað að grenndarkynna þyrfti framkvæmdina fyrir aðliggjandi jörðum. Landeigandi telur að með téðri afgreiðslu, frá 10. desember 2020, hafi sveitarstjórn staðfest að fullnægjandi gögnum hafi verið skilað.
Skipulagsnefnd hafnar þessu enda var óskað eftir ítarlegri gögnum í kjölfar grenndarkynningar þar sem gerð var alvarleg athugasemd við fyrirhugaða framkvæmd. Var það í samræmi við rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Með framkvæmd grenndarkynningar og innsendri athugasemd stofnast nýr þáttur í málinu sem taka þarf afstöðu til.
Afstaða var tekin með því að óska eftir ítarlegri gögnum en stjórnvaldi er heimilt að óska eftir gögnum m.a. með tilliti til upplýstrar ákvörðunartöku.
Auk þess vísar nefndin í 70. gr. náttúruverndarlaga um ræktun, þ.m.t. skógrækt, í kafla um skipulagsgerð, framkvæmdir og fl., en þar segir að þess skal gætt að hún (ræktunin) falli sem best að heildarsvipmóti lands. Ljóst er að fyrirhuguð framkvæmd fellur ekki vel að heildarsvipmóti lands á umræddu svæði og kemur til með að hafa neikvæð sjónræn áhrif.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að afgreiðslu erindis um skógrækt á 64 ha í landi Ásgarðs verði frestað á nýjan leik á grundvelli þess að landeigandi hefur synjað beiðni nefndarinnar um ítarlegri ásýndargögn sem eru forsenda þess að hægt sé að meta grenndarhagsmuni nágranna.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa auk þess að leita álits Skipulagsstofnunar í málinu.
| Ásgarður svarbréf 300421.pdf | Skógræktarsamningur Ásgarður.pdf | Tilkynning um skógrækt_Ásgarður.pdf | | |
|
| |
|
4. 2104021 - Borgarbyggð, ósk um umsögn vegna br. á aðalskipulagi | |
Nefndin gerir ekki athugasemdir við tillögu að breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar. | a406-Stafholtsveggir_20210324.pdf | Ósk um umsögn ASK breyting Stafholtsveggir II_Dalabyggð.pdf | | |
|
|
|
| |
7. 2104022 - Fjárhagsáætlun 2022 og 2023-2025 | |
Lagt fram til kynningar. Rætt var um helstu verkefni á komandi misserum. | | |
|