| |
1. 2001053 - Rekstur Silfurtúns 2020 | Almenn umræða um starfsemina. | | |
|
2. 2001028 - Útboð/verðkönnun vegna mötuneytis. | Samþykkt samhljóða að fela hjúkrunarframkvæmdastjóra í samráði við formann stjórnar að útbúa kröfulýsingu vegna mötuneytis Silfurtúns. Í framhaldi af því verði auglýst eftir verktaka. Stefnt að því að auglýst verði í júlí.
| | |
|
3. 1910017 - Svar Heilbrigðisstofnunar Vesturlands vegna rekstrar Silfurtúns | Í svari HVe kemur fram að stofnunin hafni beiðni Dalabyggðar um að taka við rekstri Silfurtúns. Stjórn Silfurtúns hvetur sveitarstjórn til að halda áfram með málið gagnvart heilbrigðisráðuneytinu. | | |
|
| |
4. 2005038 - Vinnuhópur lítilla hjúkrunarheimila innan SFV | Hjúkrunarframkvæmdastjóri hefur tekið þátt í starfi vinnuhópsins. Verið að vinna að blaðagrein. | | |
|
5. 2005029 - Fundir SFV 2020 | Hjúkrunarframkvæmdastjóri, formaður stjórnar og sveitarstjóri sátu aðalfund Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. | | |
|