| |
1. 2003042 - Hróðnýjarstaðir - breyting á aðalskipulagi vegna vindorkuvers | |
Umsagnir bárust frá lögboðnum umsagnaraðilum og hagsmunaaðilum. Þess má geta að leitað var umsagnar hjá Náttúrufræðistofnun Íslands en stofnunin ákvað að senda ekki inn umsögn.
Umsagnir/athugasemdir bárust frá eftirtöldum aðilum og stofnunum: Umhverfisstofnun, Orkustofnun, Landsneti, Minjastofnun Íslands, Samgöngustofu, Vegagerðinni, Landgræðslunni, Landvernd, Veðurstofu Íslands, Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, Hagsmunum.is, Bjarna V. Guðmundssyni og Valdísi Einarsdóttur.
Í umsögn frá svæðisskipulagsnefnd Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar dags. 23. mars 2021 eru ekki gerðar athugasemdir við tillögu að breytingu á aðalskipulagi Dalabyggðar vegna vindorkuvers á Hróðnýjarstöðum með þeim rökum að hún samræmist stefnu svæðisskipulagsins um eflingu atvinnulífs sem byggir m.a. á nýtingu auðlinda og auknu raforkuöryggi.
Athugasemdirnar kölluðu ekki á efnislegar breytingar á aðalskipulaginu að mati skipulagsnefndar heldur voru þættir eins og mælikvarði og innsláttarvillur lagfærðar. Skipulagsnefnd telur að uppdráttur og greinargerð hafi því verið uppfærð til samræmis við athugasemdir og ábendingar umsagnaraðila. Ítarleg svör sveitarfélagsins við athugasemdum eru að finna í minnisblaði sbr. fylgigagn, „Svör og viðbrögð Dalabyggðar við umsögnum og athugasemdum um breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna vindorkuvers í landi Hróðnýjarstaða.“
Þar sem ekki liggur fyrir verndar- og orkunýtingaráætlun fyrir fyrirhugað iðnaðarsvæði á Hróðnýjarstöðum og óvíst er um framtíðarskipan mála varðandi stöðu vindorku með tilliti til slíkrar áætlunar verða fyrirhuguð iðnaðarsvæði skilgreind sem iðnaðarsvæði í aðalskipulagi Dalabyggðar í samræmi við F-lið greinar 6.2. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013.
Með hliðsjón af framangreindu leggur skipulagsnefnd til að sveitarstjórn samþykki tillöguna ásamt svörum við athugasemdum og að breytingin verði send Skipulagsstofnun til staðfestingar fyrir gildistöku með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða. | 7358-003-ASK-006-001 Hróðnýjarstaðir vindorkugarður askbr.pdf | | |
|
2. 2003041 - Sólheimar - breyting á aðalskipulagi vegna vindorkuvers | |
Umsagnir bárust frá lögboðnum umsagnaraðilum og hagsmunaaðilum. Þess má geta að leitað var umsagnar hjá Náttúrufræðistofnun Íslands en stofnunin ákvað að senda ekki inn umsögn.
Umsagnir/athugasemdir bárust frá eftirtöldum aðilum og stofnunum: Umhverfisstofnun, Orkustofnun, Landsneti, Minjastofnun Íslands, Samgöngustofu, Vegagerðinni, Landgræðslunni, Landvernd, Veðurstofu Íslands, Húnaþingi vestra, Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, Hagsmunum.is, Bjarna V. Guðmundssyni, Valdísi Einarsdóttur, ábúendum í Bæ í Húnaþingi vestra, Helga I. Jónssyni f.h. eigenda jarðarinnar Hamra.
Í umsögn frá svæðisskipulagsnefnd Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar dags. 23. mars 2021 eru ekki gerðar athugasemdir við tillögu að breytingu á aðalskipulagi Dalabyggðar vegna vindorkuvers í landi Sólheima með þeim rökum að hún samræmist stefnu svæðisskipulagsins um eflingu atvinnulífs sem byggir m.a. á nýtingu auðlinda og auknu raforkuöryggi.
Athugasemdirnar kölluðu ekki á efnislegar breytingar á aðalskipulaginu að mati skipulagsnefndar heldur voru þættir eins og mælikvarði og innsláttarvillur lagfærðar. Skipulagsnefnd telur að uppdráttur og greinargerð hafi því verið uppfærð til samræmis við athugasemdir og ábendingar umsagnaraðila. Ítarleg svör sveitarfélagsins við athugasemdum eru að finna í minnisblaði sbr. fylgigagn, „Svör og viðbrögð Dalabyggðar við umsögnum og athugasemdum um breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna vindorkuvers í landi Sólheima.“
Þar sem ekki liggur fyrir verndar- og orkunýtingaráætlun fyrir fyrirhugað iðnaðarsvæði í Sólheimum og óvíst er um framtíðarskipan mála varðandi stöðu vindorku með tilliti til slíkrar áætlunar verða fyrirhuguð iðnaðarsvæði skilgreind sem iðnaðarsvæði í aðalskipulagi Dalabyggðar í samræmi við F-lið greinar 6.2. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013.
Með hliðsjón af framangreindu leggur skipulagsnefnd til að sveitarstjórn samþykki tillöguna ásamt svörum við athugasemdum og að breytingin verði send Skipulagsstofnun til staðfestinar fyrir gildistöku með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða. | 7358-003-ASK-007-V01 Sólheimar vindorkugarður askbr.pdf | | |
|
3. 2103016 - Skógræktaráform á jörðinni Barmi | |
Með vísun í 4. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi er umrædd framkvæmd leyfisskyld sem felur í sér að leita þarf umsagnar viðeigandi stofnana.
Nefndin samþykkir erindið með tilliti til nýrrar flokkunar á landbúnaðarlandi í drögum að endurskoðun á Aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016, en landið fellur undir flokk II og III samkvæmt þeirri skilgreiningu. Einnig þarf að grenndarkynna framkvæmdina fyrir aðliggjandi jörðum og leita eftir umsögnum frá viðeigandi stofnunum. | Barmur tillaga.pdf | | Eyjólfur Ingvi Bjarnason vék af fundi undir þessum lið.
| |
|
4. 2101036 - Fyrirspurn um Sælingsdalstungu | |
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að haldið verði eftir landinu fyrir ofan Vestfjarðarveg frá Hafragili og vestur í Mjósund. | Minnisblað - 2101036 - Landskipti Sælingsdalstungu.pdf | | |
|
5. 2104001 - Búðardalur á Skarðsströnd - umsókn um byggingarleyfi | |
Nefndin gerir ekki athugasemdir við erindið en bendir á að gögn eru ekki fullnægjandi. Byggingarfulltrúa falið að afgreiða málið. | B350 - Kynningaruppdráttur.pdf | | |
|
| |
6. 2005039 - Landvarsla við Breiðafjörð 2020 | |
Lagt fram til kynningar. | Landvarsla við Breiðafjörð 2020.pdf | | |
|
7. 2003038 - Mögulegt brottnám skipsins Blíðu SH-277 sem sökk á Breiðafirði | |
Lagt fram til kynningar. | Bréf UST vegna frestbeiðni vegna mögulegs brottnáms Blíðu_undirritað.pdf | | |
|
|