| |
1. 2003026 - Fundir byggðarráðs sem fjarfundir | |
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fundir ráðsins til 1. júní verði haldnir sem fjarfundir. | | |
|
2. 2003021 - Ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011. | |
Byggðarráð telur að á þessu stigi sé ekki ástæða til að ráðið taki frekari ákvarðanir á grundvelli ákvörðunar samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. | Ákv. SRN 18.3.2020.pdf | Breyting á sveitarstjórnarlögum til að skapa sveitarfélögum svigrúm til að bregðast við neyðarástandi og tryggja að sveitarstjórnir verði starfhæfar.pdf | | |
|
3. 2003031 - Viðbrögð Dalabyggðar vegna heimsfaraldurs COVID-19 | |
Viðbragðsteymi fundar einu sinni á dag þar sem farið er yfir stöðu og aðgerðir. | Tilkynning til ættingja og íbúa hjúkrunarheimila _tilbuid.pdf | Viðbragðsáætlun-Dalabyggðar-vegna-COVID-19-1.-útgáfa.pdf | | |
|
4. 2003034 - Breyting á gjalddögum fasteignagjalda | |
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að hægt verði sækja um að seinka gjalddögum fasteignagjalda og felur sveitarstjóra að vinna drög að tillögu þess efnis. Samþykkt samhljóða | | |
|
5. 2003029 - Ársreikningur Dalabyggðar 2019, | |
Haraldur Ö. Reynisson endurskoðandi Dalabyggðar tekur þátt í fundinum undir þessum dagskrárlið og fer yfir ársreikninginn.
Fjalla þarf um þá óvissu sem nú er uppi í skýringum með ársreikningnum.
Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 962,0 millj. kr. samkvæmt ársreikningi fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 791,5 millj. kr. Álagningarhlutfall útsvars var 14,52% sem er lögbundið hámark. Álagningahlutfall fasteignaskatts nam 0,50% í A-flokk sem er lögbundið hámark, í B-flokki nam álagningarhlutfallið 1,32% sem er lögbundið hlutfall. Í C-flokki nam álagningarhlutfallið 1,50% en lögbundið hámark þess er 1,32%. Sveitarstjórnir hafa heimild til að hækka álagningarhlutfall í A og C-flokki um allt að 25% umfram framangreind hámörk. Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 64,5 millj. kr., en rekstrarniðurstaða A hluta var neikvæð um 220,1 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2019 nam 801,5 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi, en eigið fé A hluta nam 690,3 millj. kr.
Reikningurinn staðfestur og samþykkt að visa honum til umræðu og afgreiðslu í sveitarstjórn. | | Ingibjörg Jóhannsdóttir aðalbókari tók þátt í fundinum undir hluta af þessum dagskrárlið.
| |
|
6. 1912005 - Breyting á samþykktum Dalabyggðar vegna lagabreytinga | |
Byggðarráð fór yfir breytingar og þær samþykktar samhljóða. Tillögunni vísað til síðari umræðu í sveitarstjórn. | Samþykktir með breytingum (með TrackChanges) (004).pdf | | |
|
7. 2003018 - Ósk um áframhaldandi notkun á Árbliki | |
Frestað til næsta fundar. | Beiðni frá Kvf. Fjólu með ósk um áframhaldandi notkun á Árbliki.pdf | | |
|
8. 1809034 - Reglur um styrki. | |
Tillaga að reglum samþykkt samhljóða og vísað til afgreiðslu í sveitarstjórn. | Reglur_styrktarlinur_lokadrög.pdf | | |
|
9. 1910016 - Opnunartími Sælingsdalslaugar | |
Tillaga umsjónarmanns Sælingsdalslaugar er að í júní verði opið frá kl.10:00 til kl. 18:00, í júlí og til 9. ágúst opið frá 09:00 til 19:00, frá 10. ágúst til 23. ágúst opið frá kl. 10:00 til kl. 18:00 og frá 24. ágúst til 31. ágúst opið frá 13:00 til 18:00. Að auki kvöldopnun einu sinni í viku. Samþykkt samhljóða.
| | |
|
10. 2002050 - Hirðing á svörtu rúlluplasti | |
Fulltrúar Dalabyggðar og Terra funduðu 2. mars. Í framhaldi af fundinum var sú ákvörðun tekin að halda áfram að taka á móti svörtu plasti á meðan verið er að klára birgðir hjá bændum. Þó með þeim skilyrðum að ef um svart plast er að ræða þá er mjög mikilvægt að það sé baggað. Ekki er tekið á móti stórsekkjum með heyrúlluplasti, hvorki hvítu né svörtu. | | |
|
|
12. 2001025 - Erindi frá rekstraraðila Vínlandsseturs. | |
Áfram stefnt að því að framkvæmdum verði lokið 23. apríl. Opnunarhátíð hins vegar frestað fram í júní. Undirbúningsnefnd falið í samráði við rekstraraðila og sveitarstjóra að ákveða nýja dagsetningu fyrir opnun. Samþykkt samhljóða. | Erindi til byggðaráðs Dalabyggðar vegna opnunar á Vínlandssetri.pdf | | |
|
13. 2003025 - Erindi frá rekstraraðila Eiríksstaða. | |
Byggðarráð samþykkir samhljóða tillögu rekstraraðila Eiríksstaða. | Erindi til byggðaráðs Dalabyggðar vegna opnunar á Eiríksstöðum.pdf | | |
|
|
15. 2003030 - Gjaldskrá leikskóla á meðan neyðarstig stendur yfir. | Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að einungis verði rukkað fyrir þá þjónustu í Auðarskóla sem nýtt er og felur sveitarstjóra að vinna drög að hvernig þetta verður útfært. Samþykkt samhljóða. | Leiðbeiningar um aðgerðir fyrir heimilin 23_03_2020.pdf | | |
|
| |
16. 2002002 - Kórónaveira, Staða. | COVID19_Stoduskyrsla_24032020.pdf | | |
|
17. 2003024 - Hugmyndir og ábendingar að aðgerðum til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf í ljósi þess samdráttar sem blasir við í þjóðarbúskapnum. | |
Byggðarráð minnir á mikilvægi þess að framkvæmdum við Skógarstrandarveg og tengivegi verði flýtt. Strax verði hafist handa við að bjóða út þau verk sem eru í áætlun. Samþykkt samhljóða. | Viðspyrna af hálfu sveitarfélaga mars 2020-A7 19_03_20.pdf | | |
|
18. 2001003 - Tjón í Skarðsstöð vegna óveðurs. | |
| |
|
19. 2002038 - Umsagnarbeiðni - Háafell - rekstrarleyfi | |
Fallið var frá fyrirvara í umsögn um samning um sorphirðu. | | |
|
|
21. 2001050 - Lagfæring á bátabrautinni í Hnúksnesi | |
Sveitarstjóra falið að útbúa minnisblað um málið. | | |
|