| |
1. 1904034 - Sorphreinsun - útboð 2020 - 2022 | |
Kristján Ingi Arnarsson, Kristján Sturluson og Viðar Þór Ólafsson kynntu afrakstur skoðunarferðar til nágrannasveitarfélaga varðandi fyrirkomulag sorphirðu og fyrirhugað útboð. | | Kristján Sturluson, Kristján Ingi Arnarsson og Viðar Þór Ólafsson sátu fundinn undir þessum lið.
| |
|
2. 1908002 - Heinaberg á Skarðströnd - umsókn um byggingaráform | |
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir stofnun lóðar og felur byggingarfulltrúa að annast málið.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
3. 2001033 - Umsókn um lögbýli á Selárdal | |
Samkvæmt 2. gr. jarðalaga merkir Lögbýli sérhver jörð sem hefur þann húsakost og það landrými eða aðstöðu að unnt sé að stunda þar landbúnað eða aðra atvinnustarfsemi og var skráð í jarðaskrá 1. desember 2003. Lögbýli teljast enn fremur jarðir sem hljóta síðar viðurkenningu sem ný lögbýli, sbr. 16.?22. gr. Ennfremur segir í 17. gr. jarðalaga er varðar umsókn um stofnun nýs lögbýlis að henni skulu fylgja gögn er sýni að umsækjandi hafi með þinglýstum kaupsamningi/afsali eða samningi um ábúð/leigi til a.m.k. 20 ára tryggt sér umráðarétt yfir landi og annarri búrekstrarstöðu og þinglýsingarvottorð. Með vísan í áðurnefndar greinar jarðalaga og þeirrar staðreyndar að engin mannvirki eru á jörðinni leggur nefndin til við sveitarstjórn að erindinu verði hafnað.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
4. 1910024 - Skógrækt á jörðinni Hóli - umsókn | Fyrir fundinum lá bréf til sveitarstjórnar frá Jakobi K. Kristjánssyni um frestun á framkvæmdarleyfi fyrir skógrækt á Hóli. Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir sveitarstjórn á að við afgreiðslu skógræktarumsóknar á Hóli var farið eftir markaðri stefnu svæðisskipulagsins sem tók gildi 2018 og markmiði landsskipulagsstefnu varðandi flokkun á landbúnaðarlandi. Þá bendir nefndin á að hafin er vinna við endurskoðun Aðalskipulags Dalabyggðar og málefni sem varðar flokkun lands verður flýtt.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
5. 2002001 - Áskorun, varðandi umsóknir um framkvæmdaleyfi til skógræktar á lögbýlum | Nefndin þakkar Félagi sauðfjárbænda í Dalasýslu fyrir bréfið.
Samþykkt samhljóða. | | Anna Berglind og Ragnheiður viku af fundi undir dagskrárlið 5.
| |
|
6. 1804023 - Gildubrekkur í Hörðudal - deiliskipulag | |
Lagður fram uppdráttur og greinargerð að nýju deiliskipulagi að Gildubrekkum í Hörðudal.
Nefndin samþykkir að endurauglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi Gildubrekkna ásamt breytingum skv. mgr. 41. gr. skipulagslaga 123/2010.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
7. 1909005 - Umsókn um breytingu á notkun sumarhúss í íbúðarhús. | |
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt. Grenndarkynning vegna breyttrar notkunar hússins hefur farið fram fyrir hagsmunaaðila og voru engar athugasemdir gerðar við breytinguna.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
8. 2002003 - Umsókn um stöðuleyfi fyrir gám á tjaldsvæðinu í Búðardal | |
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að umsókn um stöðuleyfi verði samþykkt. Leyfið gildi til eins árs. Byggingarfulltrúa er falið að fylgja málinu eftir.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
9. 1909004 - Reglur um skreytingar og skilti í Búðardal | |
Formlegu kynningarferli vegna draga að reglum um skilti og skreytingar í bæjarlandi Búðardals er lokið og bárust engar athugasemdir. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að reglurnar verði samþykktar.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
10. 2001050 - Lagfæring á bátabrautinni í Hnúksnesi | |
Send verður fyrirspurn til Umhverfisstofnunar. Málinu frestað.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
| |
11. 2001023 - Endurvinnsluhlutfall heimiliúrgangs í sveitarfélaginu | Lagt fram til kynningar. | | |
|