Dalabyggð veitir einstaklingum stoð- og stuðningsþjónustu eftir því sem þörf krefur og með hliðsjón af aðstæðum hverju sinni.
Þjónusta við fatlaða einstaklinga er veitt samkvæmt lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.
Liðveisla
Liðveisla er persónuleg aðstoð og stuðningur sem miðar einkum að því að rjúfa félagslega einangrun, t.d. aðstoð til að njóta félagslífs og menningar.
Í sérstökum tilvikum skal veita fötluðum einstaklingum frekari liðveislu. Hún felur í sér margvíslega aðstoð við ýmsar athafnir daglegs lífs og getur verið nauðsynleg til að koma í veg fyrir dvöl á stofnun.
Nánari upplýsingar veitir verkefnastjóri fjölskyldumála í síma 430-4700 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið jona@dalir.is
Stuðningsfjölskyldur
Stuðningsfjölskyldur eru hluti af stuðningsþjónustu fyrir börn og fjölskyldur þeirra.
Hlutverk stuðningsfjölskyldna er að taka barn eða börn tímabundið í umsjá sína í þeim tilgangi að létta álagi af barni og fjölskyldu. Með því að gerast stuðningsfjölskylda gefst einnig tækifæri til að styrkja stuðningsnet fjölskyldunnar og auka möguleika barna á félagslegri þátttöku.
Dvöl hjá stuðningsfjölskyldu er að jafnaði ein til tvær helgar á mánuði, hún er samningsbundin til ákveðins tíma og greitt er samkvæmt verktakagreiðslum.
Nánari upplýsingar veitir Jóna Björg Guðmundsdóttir, verkefnastjóri fjölskyldumála í síma 430 – 4700 eða í gegnum netfangið jona@dalir.is