Listasafn Dalasýslu


Miðbraut 11, 370 Búðardal
Sími: 430 4706 / 430 4700
Umsjón með safninu: Valdís Einarsdóttir
Listasafn Dalasýslu var stofnað 1993 fyrir tilstuðlan Helga Þorgils Friðjónssonar.
Listasafn Dalasýslu á nú margt góðra verka eftir listamenn úr Dölum, brottflutta og ættaða Dalamenn, auk velunnara.
Hluti verkanna voru í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal við misgóðar aðstæður. Þá var sýning á völdum verkum úr Listasafni Dalasýslu á neðri hæð Leifsbúðar 2010-2011.
Safnið er nú í geymslu þar til viðunandi sýningarsalur finnst fyrir það, en löngu er orðið tímabært að þessi verk fái að njóta sín betur.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei