Farsæld barna

Á Íslandi gilda lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna.
Meginmarkmið laganna er að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana.

Farsæld: Aðstæður sem skapa barni skilyrði til að ná líkamlegum, sálrænum, vitsmunalegum, siðferðislegum og félagslegum þroska og heilsu á eigin forsendum til framtíðar.

Með lögunum er fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning tryggður aðgangur að sérstökum tengilið og/eða málstjóra í nærumhverfi barnsins. Börn og fjölskyldur geta snúið sér til tengiliðar sem leiða mál áfram. Aðgangur að tengilið og málstjóra er tryggður strax frá fæðingu barns og þar til barn er 18 ára og sams konar þjónusta er í boði fyrir foreldra á meðgöngu.

Foreldrar og börn geta leitað til tengiliða Dalabyggðar til að sækja þjónustu við hæfi.

Upplýsingar um tengiliði farsældar í Dalabyggð:

Mæðaravernd: Þórunn Björk Einarsdóttir, thorunn.b.einarsdottir@hve.is
Ungbarnavernd: Þórunn Björk Einarsdóttir, thorunn.b.einarsdottir@hve.is
Leikskóli Auðarskóla: Svanhvít Lilja Viðarsdóttir, svanhvit@audarskoli.is 
Grunnskóli Auðarskóla: Sólrún Ýr Guðbjartsdóttir, solrun@audarskoli.is
Málstjóri félagsþjónustu: Jóna Björg Guðmundsdóttir, jona@dalir.is

 


Þjónustu við börn er stigskipt í þrjú stig.

Fyrsta stig: Grunnþjónusta sem er aðgengileg öllum börnum. Snemmtækur stuðningur er veittur og fylgt eftir á markvissan hátt.
Dæmi: Ung- og smábarnavernd, leikskóli, grunnskóli, almenn heilbrigðisþjónusta ofl.

Annað stig: Einstaklingsbundinn og sérhæfðari stuðningur í samræmi við faglegt mat og/eða frumgreiningu á þörfum barns.
Dæmi: Sérkennsla í skóla, einstaklingsbundinn stuðningur við barn, færniþjálfun ofl.

Þriðja stig: Einstaklingsbundinn og sérhæfðari stuðningur í samræmi við sérhæft og ítarlegt mat og/eða greiningu á þörfum barns.
Dæmi: Innlögn á sjúkrahús eða meðferðarstofnun, greining hjá sérfræðingum t.d. Ráðgjafar- og greiningarstöð, barnaverndarþjónusta ofl.

Á heimasíðunni Farsæld barna er hægt að nálgast allar helstu upplýsingar um farsældina og samþættingu þjónustu.

Sjá einnig:

Hvað þýða farsældarhugtökin?

Hvað er málstjóri?

Spurt og svarað um farsæld

Forvarnastefna Dalabyggðar 2025-2027

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei