Fjárhagsaðstoð

Upp geta komið aðstæður hjá einstaklingum og fjölskyldum sem verða þess valdandi að þörf er á fjárhagslegri aðstoð. Hérna má finna reglur Dalabyggðar um fjárhagsaðstoð og sérstakan húsnæðisstuðning.

Reglur um fjárhagsaðstoð Dalabyggðar voru samþykktar í félagsmálanefnd Dalabyggðar 16. mars 2010 og staðfestar í sveitarstjórn Dalabyggðar 20. apríl 2010. Reglur þessar byggja á lögum nr.40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.

Samkvæmt lögunum er sveitarfélögum skylt að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu þeirra sem vegna sérstakra aðstæðna geta ekki séð sér og sínum farborða án aðstoðar.

Fjárhagsaðstoð er veitt með það að markmiði að veita einstaklingum og fjölskyldum hjálp til sjálfshjálpar.

Áður en sótt er um fjárhagsaðstoð skal það jafnan kannað til þrautar hvort að umsækjandi hafi rétt til annarra greiðslna, þar með talið frá almannatryggingum, atvinnuleysistryggingum, lífeyrissjóðum og sjúkrasjóðum stéttarfélaga.

Nánari upplýsingar veitir verkefnastjóri fjölskyldumála, Jóna Björg Guðmundsdóttir í síma 430-4700 eða gegnum netfangið jona@dalir.is.

Umsókn um fjárhagsaðstoð sendist á netfangið jona@dalir.is

Vinsamlegast athugið að með umsókn þurfa að fylgja launaseðlar umsækjanda og maka, bótaseðlar umsækjanda og maka frá Tryggingastofnun ríkisins, greiðslur úr lífeyrissjóðum til umsækjanda og maka, auk afrits af skattframtali síðasta árs.

Sérstakur húsnæðisstuðningur

Hægt að sækja um sérstakan húsnæðisstuðning til viðbótar við húsnæðisbætur og er sá stuðningur veittur til einstaklinga sem búa við erfiðar félagslegar eða fjárhagslegar aðstæður.

Nánari upplýsingar um rétt á sérstökum húsnæðisbótum veitir verkefnastjóri fjölskyldumála í síma 430-4700 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið jona@dalir.is

 

Sérstakur húsnæðisstuðningur ungmenna 15 – 17 ára

Þau ungmenni sem eru á aldrinum 15 – 17 ára og eru í framhaldsskóla fjarri heimili sínu eiga rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi. Stuðningurinn er ætlaður foreldrum/forsjáraðilum ungmenna sem leigja herbergi á heimavist, á námsgörðum eða leiguherbergi á almennum markaði en njóta ekki réttar til húsnæðisbóta vegna aldurs.

Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning ungmenna 15 – 17 ára sendist á netfangið magnina@dalir.is

Vinsamlegast athugið að með umsókn þarf að fylgja staðfesting á skólavist, auk afrits af húsaleigusamningi.

 

Húsnæðisbætur

Húsnæðisbætur eru mánaðarlegar greiðslur sem ætlað er að aðstoða einstaklinga sem leigja íbúðarhúsnæði. Húsnæðið getur verið á almennum leigumarkaði, félagslegt húsnæði, leiga á námsgörðum eða á áfangaheimilum. Upphæð húsnæðisbóta ræðst af fjölda einstaklinga á heimili, eignum, innkomu og leiguverði.

Í kjölfar lagabreytinga árið 2017 fór umsjón húsnæðisbóta frá sveitarfélögum og er nú í höndum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Hér er hægt að sækja um húsnæðisbætur:

Húsnæðisbætur | á vef Ísland.is

 

ÍTAREFNI:

Reglur eru um sérstakan stuðning í húsnæðismálum í Dalabyggð

Eyðublað – Sérstakur húsnæðisstuðningur fyrir 15-17 ára

Lög nr.40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga

Reglur um fjárhagsaðstoð Dalabyggðar

Eyðublað – Umsókn um fjárhagsaðstoð

 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei