Almennt félagsstarf:
Núverandi aðildarfélög UDN eru Umf. Æskan, Umf. Ólafur Pái, Umf. Dögun, Umf. Stjarnan, Umf. Afturelding, Hestamannafélagið Glaður, Glímufélag Dalamanna og Íþróttafélagið Undri.
Ungmennasamband Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga er aðili að UMFÍ og ÍSÍ.
Hestamannafélagið Glaður:
Hestamannafélagið Glaður er með heimasíðu þar sem má nálgast gagnlegar upplýsingar og kort af reiðleiðum í Dalabyggð.
Lionsklúbbur Búðardals:
Lions býður upp á fjölbreytt félagslíf, fræðslu, skemmtanir, verkefni, fundi og ferðalög með vinum og fjölskyldum.
Kvenfélög: Kvenfélagið Fjólan starfar í Suðurdölum, Þorgerður Egilsdóttir í Laxárdal og Hvöt á Fellsströnd. Þessi kvenfélög ásamt kvenfélögum í Austur-Barðastrandarsýslu mynda Samband breiðfirskra kvenna.
Slysavarnadeild Dalasýslu og Rauði Krossinn eru einnig með virkt starf í Dalabyggð.
Leikklúbbur Laxdæla starfar í Dalabyggð, félagið setur upp sýningar og tekur þátt í ýmsum menningarviðburðum.
Þá eru starfandi Sögufélag Dalamanna og Fornleifafélag Barðstrendinga og Dalamanna.
Félag eldri borgara í Dalbyggð og Reykhólahreppi – FEBDOR:
Félag eldri borgara í Dalbyggð og Reykhólahreppi stendur fyrir fjölbreyttu félagsstarfi í þessum tveimur sveitarfélögum.
Landbúnaðartengd félög:
Fjöldi félaga er um allar sveitir tengd búskap, búnaðarfélög, sauðfjár- og hrossaræktarfélög. Fjölmennast þeirra er Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu, sem stendur m.a. fyrir Haustfagnaði sauðfjárbænda fyrsta vetrardag ár hvert. Kúabændur í Dölum sem tilheyra búgreinadeild nautgripabænda eru í Félagi nautgripabænda við Breiðafjörð.