Sveitarstjórnarkosningar 2026
Fyrir kynningar á þeim sem gefið hafa kost á sér, smellið hér: Kynningar frambjóðenda
Framboð
Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga var til kl. 12 á hádegi föstudaginn 10. apríl. Enginn framboðslisti var lagður fyrir kjörstjórn Dalabyggðar innan lögbundins frests og verða því óbundnar kosningar (persónukjör) í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí 2026.
Allir kjósendur sveitarfélagins eru í kjöri, nema þeir sem löglega eru undanþegnir skyldu til að taka kjöri og hafa fyrirfram skorast undan því.
Þeir sem hafa að skorast undan kjöri samkvæmt 49. gr. kosningalaga nr. 112/2021 eru Eyjólfur Ingvi Bjarnason í Ásgarði, Halla Sigríður Steinólfsdóttir í Ytri-Fagradal, Skúli Hreinn Guðbjörnsson í Miðskógi og Þuríður Jóney Sigurðardóttir á Sunnubraut 3b. Atkvæði greidd þessum einstaklingum dæmast ógild.
Þeim sem er kjörgengur, heill og hraustur og yngri en 65 ára er skylt að taka kjöri í sveitarstjórn skv. 5. mgr. 49. gr. kosningalaga nr. 112/2021.
Kjörfundur
Kjörfundur verður laugardaginn 16. maí kl. 10:00 – 19:00 í Dalabúð og verður nánar auglýstur síðar.
Óski kjörstjórn þess, ber kjósanda að framvísa persónuskilríkum á kjörstað.
Skrifa skal læsilega nafn og heimili 7 aðalmanna og 7 varamanna. Auðar línur á kjörseðli ógilda ekki önnur greidd atkvæði. Þannig að t.d. atkvæðaseðill án varamanna telst gilt atkvæði og einnig þó aðeins sé eitt nafn skrifað á seðilinn.
Öll atkvæði aðalmanna eru jafnvæg og skiptir því ekki hver röð þeirra er á kjörseðlinum. Röð varamanna skiptir aftur á móti máli og eru þau númeruð. Hvert sæti varamanns er talið sérstaklega og teljast með atkvæði greidd viðkomandi sem aðalmaður og í fyrri sæti sem varamaður.
Atkvæði telst gilt þó sleppt sé fornafni, eftirnafni eða heimilisfangi ef enginn vafi er á við hvern er átt.
Aðstoð á kjörstað
Kjósandi á rétt til aðstoðar við atkvæðagreiðsluna án skýringa.
Aðstoð skal veitt af þeim úr kjörstjórn sem kjósandi tilnefnir eða aðstoðarmanni sem fylgir kjósanda á kjörstað. Aðstoðarmanni kjósanda er óheimilt að gerast aðstoðarmaður fleiri en þriggja kjósenda við sömu kosningar.
Talning atkvæða
Talning atkvæða fer fram í stjórnsýsluhúsinu (fundarsal á annarri hæð) og hefst um kl. 20:00 eða um hálftíma frá að atkvæðagreiðslu og frágangi lýkur.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst föstudaginn 17. apríl 2026 hjá sýslumönnum og hjá sumum sveitarfélögum.
Kosið verður á afgreiðslu sýslumanns í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal eftirtalda daga
- þriðjudaginn 21. apríl kl. 9:00-15:00.
- þriðjudaginn 28 apríl kl. 9:00-15:00.
- miðvikudaginn 29. apríl kl. 9:00-15:00
- fimmtudaginn 30. apríl kl. 9:00-15:00.
- þriðjudaginn 5. maí kl. 9:00-15:00.
Frá og með 6. maí fer utankjörfundaratkvæðagreiðsla fram á skrifstofu Dalabyggðar alla virka daga á opnunartíma skrifstofunnar.
Kjörskrá
Viðmiðunardagur kjörskrár var miðvikudaginn 8. apríl. Á kjörskrá í Dalabyggð eru alls 534, karlar 281 og konur 253.
Kjörskrá fyrir Dalabyggð vegna sveitarstjórnarkosninganna liggur frammi til kjördags á opnunartíma skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11 í Búðardal.
Á kjörskrá eru allir íslenskir og norrænir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri þegar kosning fer fram og eiga lögheimili í sveitarfélaginu. Erlendir ríkisborgarar sem hafa átt samfellda búsetu á Íslandi í að minnsta kosti þrjú ár fyrir lok kjörfundar og eiga lögheimili í sveitarfélaginu. Jafnframt námsmenn á Norðurlöndum sem hafa sótt um að vera teknir á kjörskrá.
Athugasemdum og kærum við kjörskrá skal beint til Þjóðskrár Íslands sem tekur þær til meðferðar.
Upplýsingar
Upplýsingar um flest er lýtur að sveitarstjórnarkosningunum er að finna á kosningavef Landskjörstjórnar, www.kosning.is.
Annað
Af gefnu tilefni skal tekið fram að gervigreindin getur gefið rangar upplýsingar um óbundnar kosningar og ekki mælt þeirri aðferð við að afla sér upplýsinga. Frekar er mælt með að afla sér upplýsinga á heimasíðu Landskjörstjórnar, hér á þessari síðu eða hafa samband við kjörstjórnarfulltrúa með spurningar.
Fyrir kynningar á þeim sem gefið hafa kost á sér, smellið hér: Kynningar frambjóðenda
