Rotþróahreinsun

Í Dalabyggð eru rotþrær hreinsaðar á þriggja ára fresti. Kostnaður við rotþróahreinsun er innheimtur með fasteignagjöldum. Hægt er að biðja um hreinsun utan áætlunar ef þörf er á. Athugið að hreinsanir sem eru utan þess svæðis sem er á áætlun viðkomandi árs geta haft í för aukakostnað fyrir eiganda.

Dalabyggð vill brýna fyrir fólki að hafa allt klárt fyrir rotþróahreinsun þegar að því kemur s.s. gæta að merkingum rotþróa t.d. með veifum og auðvelda aðgengi að rotþróm. Þá þarf að koma upplýsingum um hlið eða aðrar hindranir til Viðars í síma 894-0013 sem fyrst, eða hafa hlið opin á meðan á hreinsun stendur.

Ef rotþróin er stífluð hafið samband við fagaðila (pípara) til að greina vandann sem er yfirleitt ekki út af því að rotþróin sé full.

Hreinsun næstu ára:

  • 2023 – Hörðudalur, Miðdalir og Haukadalur
  • 2024 – Laxárdalur, Saurbær og Skarðsströnd
  • 2025 – Hvammssveit, Fellsströnd og Skógarströnd

Íbúar Dalabyggðar eru beðnir um að gæta að því lyf, plastúrgangur, blautþurrkur, eyrnapinnar og önnur skaðleg efni rati ekki í rotþrær.

Upplýsingar um fráveitumál, þar á meðal rotþrær og siturlagnir má nálgast á vef Umhverfisstofnunar eða með því að smella HÉR.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei