Söfnunarstöðin í Búðardal

Söfnunarstöðin í Búðardal er staðsett að Vesturbraut 22, 370 Búðardal og hefur verið starfrækt frá 23. september 2010. Hún er rekin af Íslenska gámafélaginu.

Sjá upplýsingar varðandi flöskumóttöku hérna neðar á síðunni.

Opnunartímar endurvinnslustöðvar:
þriðjudagar 14 18
fimmtudagar 14 18
laugardagar 10 14

*   Lokað á stórhátíðardögum   *

Á stöðinni er tekið á móti endurvinnanlegum úrgangi, byggingarúrgangi, spilliefnum, ökutækjum o.fl. Mælt er með flokka úrganginn eins mikið og mögulegt er við komu á móttökustöðina til að lágmarka kostnað, flýta fyrir losun á svæði og dragar úr umhverfisáhrifum. Úrgangur er ýmist gjaldskyldur eða gjaldfrjáls og almennt má segja að þeir flokkar sem falla undir Úrvinnslusjóð eru gjaldfríir.

Neðangreind gjaldskrá tekur gildi 1. júní 2026. Fram að því er innheimt fyrir gjaldskylda flokka skv. eldra rúmmetragjald sem er 5.200 kr./m3.

Gjaldtaka á söfnunarstöð í Búðardal miðast við rúmmál (m³) þess úrgangsmagns sem afsett er. Íslenska gámafélagið sér alfarið um innheimtu gjaldsins.

Allur úrgangur er gjaldskyldur við afsetningu nema brotamálmar, spilliefni og úrgangur sem ber úrvinnslugjald til Úrvinnslusjóðs. Starfsmaður stöðvar magntekur úrgang sem hleypur á 0,25 m³, greitt er fyrir þann úrgang á staðnum. Tekið er lágmarksgjald fyrir gjaldskyldan úrgang í litlu magni.

Blandaður úrgangur 10.800 kr./m3
Óflokkaður grófur úrgangur 11.600 kr./ m3
Timbur, litað og hreint 9.200 kr./m3
Gormadýnur 12.000 kr. /m3
Óvirkur úrgangur
(t.d. gler, postulín, gifs og múrbrot)
6.000 kr. /m3
Eðlisléttur úrgangur til urðunar
(t.d. einangrunaplast)
1.500 kr. /m3
Lágmarkskomugjald á stöð með gjaldskyldan úrgang (minna en 0,25 m3) 800 kr./skipti

Við komu á endurvinnslustöð skal tala við starfsmann, sem afgreiðir og leiðbeinir, áður en losun hefst.
 

Við heimsókn á gámastöðina skal úrgangurinn vera vel flokkaður. Ef ekki er flokkað og erfitt að sjá hverju er verið að henda, t.d. ef rusl er í svörtum ruslapokum, þá verður innheimt fyrir öllum sem óflokkuðum úrgangi.

Gjaldskrár Dalabyggðar

Tekið á móti eftirfarandi flokkum úrgangs (gjaldfrjáls/gjaldskyldur):

  1. Endurvinnsluúrgangur, s. s. pappa, pappír og plast
  2. Raf‐ og rafeindatæki, s. s. kælitæki, ísskápar, rafeindatæki, sjónvörp, skjáir, kaplar, perur…
  3. Spilliefni, s. s. olíuvörur, leysiefni, málning, rafgeymar, rafhlöður
  4. Timbur, allt
  5. Gormadýnur
  6. Óflokkaður grófur úrgangur
  7. Málmur, brotajárn (niðursuðudósir í sér ílát)
  8. Steinefni, s. s. grjót, steypubrot, gler, postulín, gifs… (glerumbúðir í sér ílát)
  9. Hjólbarðar
  10. Heyrúlluplast
  11. Ökutæki
  12. Nytjahlutir
  13. Fata‐ og klæðaefni
  14. Almennur blandaður (óflokkaður) úrgangur

 

Lúgur/grenndarstöð, aðgengilegar allan sólahringinn:

Lúgur á flokkunarkró við endurvinnslustöð í Búðardal.

Nánari upplýsingar varðandi flokkun, fræðslu og búnað fyrir úrgangsflokkun má nálgast á heimasíðu Íslenska gámafélagsins: www.igf.is

 

Skilagjaldskyldar umbúðir

Tekið er á móti skilagjaldskyldum umbúðum (flöskum og dósum) hjá Endurvinnslan flöskumóttaka að Vesturbraut 8 í Búðardal. Skila þarf umbúðum flokkuðum og töldum. Sjá frekari upplýsingar, m.a. um opnunartíma á Facebook-síðu móttökunnar: Endurvinnslan flöskumóttaka

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei