Miðbraut 11, 370 Búðardalur
Sími: 430 4720 / 430 4700
Netfang: bokasafn@dalir.is
Bókavörður er Sigríður Jónsdóttir
Opnunartímar
Þriðjudagar kl. 12:30-17:30
Fimmtudagar kl. 12:30-17:30
Bókasafnið er lokað beri almenna frídaga upp á opnunardaga.
Þjónusta Héraðsbókasafns Dalasýslu
Héraðsbókasafn Dalasýslu sinnir almennri útlánaþjónustu bóka.
Nýjar bækur eru lánaðar út með 14 daga skilafresti en eldri bækur 30 daga.
Hægt er að fá lánaðar bækur frá öðrum söfnum gegn greiðslu samkvæmt gjaldskrá.
Hvert heimili fær aðgang að bókasafninu í gegn um eitt aðgangskort og er greitt fyrir það einu sinni á ári.
Innheimt er gegn um heimabankaþjónustu að jafnaði, en einnig er hægt að greiða árgjaldið beint á bókasafninu.
Héraðsbókasafnið er aðili að Rafbókasafni Íslands, og gildir aðgangskort í Héraðsbókasafninu einnig þar.

Verð á bókasafnskorti árið 2022 eru 2.500 kr.-
Útleigutími bóka er ýmist tvær eða fjórar vikur. Sé bók ekki skilað á réttum tíma skal greiða 30 kr.- fyrir hvern dag sem fer fram yfir lánstíma. Ekki er reiknað skilagjald fyrir þá daga sem safnið er lokað yfir sumarið.
Millisafnalán kostar 3.800 kr.- fyrir hverja bók.

Rafbókasafn
Héraðsbókasafn Dalasýslu er aðili að rafbókasafninu. Til þess að fá aðgengi að Rafbókasafninu þarf lánþegi að vera með gilt bókasafnskort og velja sér aðgangsorð sem bókavörður skráir inn í gangagrunn bókasafna. Upplýsingar og aðstoð er hægt að fá á Héraðsbókasafni Dalasýslu, netfanginu bokasafn@dalir.is eða í síma 430 4720.
![]() |
![]() |
![]() |