Skipulagsmál

Skipulagsfulltrúi

Sameiginlegur skipulagsfulltrúi er fyrir Árneshrepp, Dalabyggð, Strandabyggð, Kaldrananeshrepp og Reykhólasveit. Skipulagsfulltrúi er með aðsetur á stofu í Reykjavík. Hægt er að hafa samband með tölvupósti eða með því að bóka viðtalstíma á opnunartíma skrifstofu Dalabyggðar.

Netfang: skipulag@dalir.is
Sími skrifstofu Dalabyggðar: 430 4700

Skipulagsskylda og ferlar

Í skipulags- og byggingarlögum er kveðið á um að allt land sé skipulagskylt. Bygging húsa, mannvirkja og aðrar framkvæmdir sem breyta ásýnd umhverfisins eiga að vera í samræmi við skipulagsáætlanir.
Umhverfisráðuneytið fer með skipulags- og byggingarmálefni.
Skipulagsstofnun sinnir afgreiðslu skipulags- og byggingarmála, umhverfismati áætlana og mati á umhverfisáhrifum framkvæmda og veitir ráðgjöf og leiðbeiningar í framangreindum málaflokkum.
Sveitarstjórnir bera ábyrgð á gerð skipulagsáætlana og skal starfa sérstök skipulagsnefnd í hverju sveitarfélagi. Með nefndunum skal starfa skipulagsfulltrúi og byggingarfulltrúi.
Í Dalabyggð falla skipulags- og byggingarmál undir Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei