Félagsstarf eldri borgara
Félag eldri borgara í Dalabyggð og Reykhólahreppi stendur fyrir fjölbreyttu félagsstarfi í þessum tveimur sveitarfélögum.
Hvetjum 60 ára+ og aðstandendur að gerast meðlimir að Facebook hóp félagsins sem heitir:
Félag eldri borgara í Dalabyggð og Reykhólahreppi. <— smellið hér.
Nýir félagar velkomnir 60+!
Steinunn Lilja tekur við skráningu nýrra félaga í síma: 830-0031.
Hreyfing
Gönguhópurinn Stormur gengur frá Rauða kross húsinu kl. 10.30 á mánudögum og föstudögum. Gangan endar á góðum kaffisopa og spjalli við heimilisfólkið á Silfurtúni á mánudögum en í Rauða kross húsinu á föstudögum.
Boccia: Boccia verður spilað í nýju Íþróttamiðstöðinni í Búðardal klukkan 13:30 – 15:30 á eftirfarandi dagsetningum: 8. október, 22. október, 5. nóvember og 19. nóvember.
Líkamsræktartímar: Lína verður með líkamsræktartíma í nýju Íþróttamiðstöðinni í Búðardal alla mánudaga og miðvikudaga kl. 14:30 fyrir 60+.
67 ára og eldri með lögheimili í Dalabyggð fá heilsukort án endurgjalds í nafni “gott að eldast í Dölum”. Kortið veitir aðgang að sund og líkamsrækt í íþróttmiðstöðinni í Búðardal.
Dagskrá félagsins
| Dagsetning | Staðsetning | Tími | |
| 17. september | Bingó | Silfurtún | 14:00 |
| 1. október | Félagsvist | Tjarnarlundi | 14:00 |
| 15. október | Söngstund | Barmahlíð | 14:00 |
| 29. október | Valdís | RK-húsið | 14:00 |
| 12. nóvember | Söngstund | Silfurtún | 14:00 |
| 26. nóvember | Bingó | Barmahlíð | 14:00 |
| 3. desember | Félagsvist | RK-húsið | 14:00 |
| 10. desember | Jólasöngstund | Silfurtúni | 14:00 |
Lagt af stað frá Silfurtúni kl 13.00 þegar farið verður í Tjarnalund og Barmahlíð
Steinunn Lilja tekur við skráningu nýrra félaga í síma 830-0031
Athugið að öll dagskrá hér er birt með fyrirvara um breytingar.
