Veitur í Dalabyggð

Veitur Dalabyggðar

Vatnsveita

Vatnsveita Dalabyggðar er rekin af sveitarfélaginu. Stofnlögn liggur frá vatnsbóli á Svínadal í Búðardal. Veitan sér byggingum á leiðinni og þéttbýlinu fyrir köldu vatni.

Fráveita

Dalabyggð rekur fráveitukerfi í Búðardal. Kerfið er að mestu leyti einfalt þar skólp og regnvatn rennur saman í eina útrás neðan við Búðarbraut. Unnið er að uppsetningu hreinsistöðvar sem grófhreinsar frárennslið áður en það rennur til sjávar.

Götulýsing í Búðardal

Götulýsing í Búðardal er í eigu Dalabyggðar, að Vesturbraut undanskildri sem er á forræði Vegagerðarinnar. Sveitarfélags-hluti götulýsingar í Búðardal hefur að mestu verið LED-vædd.

Dalaveitur ehf.

Dalaveitur ehf. er félag í eigu Dalabyggðar sem rekur hitaveitu á Laugum í Sælingsdal. Félagið stóð fyrir uppbyggingu fjarskiptakerfis í dreifbýli sem nú er í eigu Mílu.

Tilkynningar um bilanir í veitum sveitarfélagsins skal senda á dalir@dalir.is eða í neyði í síma 894-0831.

 

Aðrar veitur

Hitaveita Rarik

Rarik á og rekur veituna sem sér Búðardal fyrir heitu vatni. Borholur veitunnar eru í Reykjadal nærri Bröttubrekku. Bæir á stofnleið eru einnig tengdir veitunni.

Rafveita Rarik

Allt dreifikerfi fyrir rafmagn í Dalabyggð er rekið af Rarik. Spennistöð Landsnets við Glerárskóga er megin tenging kerfisins.

Fjarskiptakerfi Mílu

Ljósleiðaralagnir í þétt- og dreifbýli er rekin af Mílu. Ljósleiðaravæðing Búðardals lauk 2025 og í kjölfarið hefur verið lokað fyrir fjarskipti um kopar.

 

Við framkvæmdir skal hafa í huga veitur sem eru með dreifikerfi í jörð í dreifbýli Dalabyggðar, t.d. ljósleiðarakerfi Mílu, hitaveita (Reykjadal-Búðardal) og rafstrengir Rarik, fjarskiptalagnir Mílu og Orkufjarskipta og vatnsveita Dalabyggðar (Svíndalur-Búðardal).

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei