Desember, 2023
05des17:0018:00Dalabyggð í sókn - kynning á niðurstöðum
![](https://dalir.is/wp-content/uploads/2023/11/bjarkic1kynning.png)
Nánari upplýsingar
Dalabyggð í sókn – niðurstöður könnunar. Í september var gerð könnun meðal íbúa í tengslum við verkefnið Dalabyggð í sókn. Meðal þess sem verið var að kanna
Nánari upplýsingar
Dalabyggð í sókn – niðurstöður könnunar.
Í september var gerð könnun meðal íbúa í tengslum við verkefnið Dalabyggð í sókn. Meðal þess sem verið var að kanna var sýn íbúa á styrkleika og samfélagið í Dölunum.
Dr. Bjarki Þór Grönfeldt frá Háskólanum á Bifröst mun kynna niðurstöður könnunarinnar í Nýsköpunarsetri Dalabyggðar 5. desember kl. 17.00-18.00 Við hvetjum íbúa til að fjölmenna og heyra um niðurstöður könnunarinnar sem þeir tóku þátt í en þær eru bæði fróðlegar og áhugaverðar. Þessar niðurstöður nýtast í áframhaldandi vinnu í verkefninu Dalabyggð í sókn, þar sem unnið verður að því að styrkja ímynd Dalanna út á við, m.a. til að trekkja að nýja íbúa.
Heitt á könnunni og frítt inn eins og alltaf.
Verið hjartanlega velkomin í Nýsköpunarsetrið, Miðbraut 11, 1. hæð.
Meira
Klukkan
(Þriðjudagur) 17:00 - 18:00
Staðsetning
Nýsköpunar- og frumkvöðlasetur Dalabyggðar (Stjórnsýsluhúsi)
Miðbraut 11