Nóvember, 2024
30nóv19:30Er líða fer að jólum 2024
Nánari upplýsingar
Þann 30. nóvember 2024 verður slegið í þriðju jólatónleikana í tónleikaröðinni Er líða fer að jólum! “Drungi í desember dagskíman föl svo skelfing
Nánari upplýsingar
Þann 30. nóvember 2024 verður slegið í þriðju jólatónleikana í tónleikaröðinni Er líða fer að jólum!
“Drungi í desember
dagskíman föl
svo skelfing lítil er
en myrkrið er svo magnað
og myrkrið er svo kalt”
Já myrkrið er svo kalt en við jólahópurinn Er líða fer að jólum ætlum að tendra birtu og yl í hjörtum okkar allra með því að töfra fram létta, heimilislega og hátíðlega jólatónleika þann 30 nóvember næstkomandi.
Nú er um að gera að taka daginn frá og víkja eina kvöldstund frá amstri dagsins, koma inn í hlýjuna og hlusta á ljúfa jólatónna
Verð 4.500,- kr
Miðasala mun fara fram í gegnum netfangið skerdingar@gmail.com og í gegnum síma 843-6818 eftir kl. 16:30 á daginn, til og með 25. nóvember
Líkt og í fyrra verður EKKI hægt að kaupa miða við hurð
Styrktaraðilar tónleikana: Uppbyggingarsjóður Vesturlands, Frumkvæðissjóður DalaAuðs, Menningarmálaverkefnasjóður Dalabyggðar og Dalabyggð
Meira
Klukkan
(Laugardagur) 19:30
Staðsetning
Dalabúð
Miðbraut 8