Ókeypis námskeið: Markaðssetning á netinu - með Ragnari Má
11apr(apr 11)17:0015(apr 15)18:30Ókeypis námskeið: Markaðssetning á netinu - með Ragnari Má
Nánari upplýsingar
Námskeiðslýsing: Á þessu námskeiði verður áhersla á markaðssetningu vöru og þjónustu með sérstöku tilliti til markaðssetningu á stafrænum miðlum. Farið verður yfir grunnþætti markaðsfærslu, markhópanálgun, markaðssamskipti
Nánari upplýsingar
Námskeiðslýsing:
Á þessu námskeiði verður áhersla á markaðssetningu vöru og þjónustu með sérstöku tilliti til markaðssetningu á stafrænum miðlum. Farið verður yfir grunnþætti markaðsfærslu, markhópanálgun, markaðssamskipti og framkvæmd auglýsingaherferða á samélagsmiðlum.
Námsmarkmið
Eftir námskeiðið eiga nemendur að:
- Þekkja mikilvægi faglegrar markaðsstjórnunar
- Geta undirbúið markaðssókn gagnvart markhópum
- Gera sér grein fyrir kostum mismunandi boðleiða
- Geta birt auglýsingar á samfélagsmiðlum
Námskeiðið fer fram á Teams á eftirfarandi dagsetningum:
Föstudaginn 11. apríl frá 17:00-18:30: Fyrirlestur um mikilvægi faglegs markaðsstarfs + spjall/umræður
Mánudaginn 14. apríl frá 17:00-18:30: Fyrirlestur um markhópa og markaðssamskipti + spjall/umræður
Þriðjudaginn 15. apríl frá 17:00-18:30: Fyrirlestur um skipulagningu og uppsetningu auglýsinga á stafrænum miðlum + spjall/umræður
Námskeiðið er gjaldfrjálst en skráningar er þörf:
Sendið póst með nafni þátttakenda, símanúmeri og nafni ykkar sveitarfélags á endurmenntun@bifrost.is til að skrá ykkur.
Ragnar Már Vilhjálmsson er lektor við Háskólann á Bifröst, er fagstjóri markaðsfræðináms við skólann og hefur kennt markaðsfræði í yfir 25 ár. Er einnig stofnandi og eigandi markaðsstofunnar Manhattan og hefur stýrt markaðsmálum fyrir fjölda fyrirtækja á sínum ferli.
Facebook viðburður: https://fb.me/e/5qzYsB6gj
Meira
Klukkan
11. Apríl, 2025 17:00 - 15. Apríl, 2025 18:30(GMT+00:00)