Rokkkórinn á Jörvagleði

26apr20:00Rokkkórinn á Jörvagleði

Nánari upplýsingar

Þá er komið að því.

Rokkkórinn ætlar að stíga á stokk hjá nágrönnum okkar í Búðardal. Þar ætlar kórinn vera með tónleika í Dalabúð laugardagskvöldið 26. apríl kl. 20:00 og er það partur af dagskrá bæjarhátíðarinnar Jörvagleði.

Dagskrá tónleikanna mun spanna lög yfir 50 ára tímabil og því um fjölbreytta dagskrá að ræða.

Rokkkórinn er 25 manna kór úr Húnaþingi vestra sem hefur verið starfandi síðan 2021. Er þetta í annað skiptið sem kórinn stendur sjálfur fyrir tónleikum en hefur einnig komið fram sem gestaatriði í nokkur skipti. Meðlimir kórsins koma úr öllum áttum, bændur, kennarar, rafvirkjar, smiðir, dýralæknir, innheimtustjóri, fjármálastjóri, prjónakall, sjúkraliði, leikskólakennari, innkaupastjóri, sjúkraflutningamenn og áfram mætti telja. Æfingar fyrir þessa tónleika hafa staðið yfir með hléum síðan haustið 2023 og er mikil tilhlökkun í kórnum með að sýna afrakstur þeirra.

Tónleikarnir hefjast kl. 20:00.
Miðaverð er 5.000 kr.

Hægt að kaupa miða við hurð eða 24.-26. apríl frá kl. 16-18 alla dagana, í Félagsheimilinu Dalabúð.

Meira

Klukkan

26. Apríl, 2025 20:00(GMT+00:00)

Staðsetning

Dalabúð

Miðbraut 8

Other Events

Get Directions