Orri Óstöðvandi - sýning fyrir miðstig grunnskóla

06maí10:00Orri Óstöðvandi - sýning fyrir miðstig grunnskóla

Nánari upplýsingar

Ókeypis viðburður fyrir miðstig grunnskóla í samstarfi við Þjóðleikhúsið:

6. maí 2025 kl. 10:00 í Dalabúð

Ný sýning byggð á geysivinsælum bókum um Orra óstöðvandi og vinkonu hans Möggu Messi eftir Bjarna Fritzson. Orri er ungur drengur sem breytir sér í ofurhetjuútgáfuna af sjálfum sér, Orra óstöðvandi, þegar hann þarf á hugrekki og sjálfstrausti að halda. Orri og Magga lenda í alls konar ævintýrum, hversdagslegum jafnt sem ótrúlegum, og eru uppátækjum þeirra engin takmörk sett.

Sýningin ferðast um landið á vormisseri og verður sýnd fyrir miðstig grunnskóla.

Tónlistartvíeykið vinsæla, JóiPé og Króli, semur tónlist fyrir sýninguna.

Meira

Klukkan

6. Maí, 2025 10:00(GMT+00:00)

Staðsetning

Dalabúð

Miðbraut 8

Other Events

Get Directions