Málþing um Magnús Ketilsson

24ágú14:0016:00Málþing um Magnús Ketilsson

Nánari upplýsingar

Magnús Ketilsson, nýsköpun og upplýsing á 18. öld. Málþing að Nýp á Skarðsströnd 24. ágúst kl. 14:00 til 16:00.

Fyrirlesarar Hrafnkell Lárusson sagnfræðingur og Sigurbjörn Einarsson jarðvegsfræðingur.

Magnús Ketilsson (1732-1803) í Búðardal á Skarðsströnd var sýslumaður Dalasýslu, frumkvöðull í ræktun, ein helsti forsvarsmaður Hrappseyjarprentsmiðju, rithöfundur og upplýsingarmaður.

Í erindi sínu, Upplýsing gegn hjátrú. Um viðhorf og skrif Magnúsar Ketilssonar sýslumanns í Búðardal, mun Hrafnkell Lárusson ræða um Magnús sem frumkvöðul á 18. öld, merkisbera róttækra hugarfarsbreytinga og úrbóta í verklegum og andlegum efnum. Hrafnkell mun ræða hvernig þessi viðhorf birtust í ritum Magnúsar sem flest komu út á vegum Hrappseyjarprentsmiðju, fyrstu veraldlegu prentsmiðju landsins.

Í erindi sínu, Ræktunarmaðurinn Magnús Ketilsson í Búðardal á Skarðsströnd, ræðir Sigurbjörn Einarsson um mótun Magnúsar Ketilssonar sem ræktunarmanns, helstu þætti í ræktunarstarfi hans og hvernig hann varð áhrifavaldur í ræktun. Að loknu málþingi er boðið upp á léttar veitingar en síðan verður farið í heimsókn í Búðardal (3 km., ekki átt við þéttbýlisstaðinn) þar sem Benedikt Eyjólfsson og Margrét Beta Gunnarsdóttir taka á móti gestum og greina stuttlega frá staðnum.

Meira

Klukkan

24. Ágúst, 2025 14:00 - 16:00(GMT+00:00)

Staðsetning

Nýp

Skarðsströnd

Other Events

Get Directions