Bæjarhátíðin ,,Heim í Búðardal” - undirbúningur

03feb16:0018:00Bæjarhátíðin ,,Heim í Búðardal” - undirbúningur

Nánari upplýsingar

Bæjarhátíðin ,,Heim í Búðardal” verður haldin fyrstu helgina í júlí á komandi sumri. Fyrstu skref við undirbúning er að fara af stað og á fundi menningarmálanefndar Dalabyggðar þann 20.janúar sl. var samþykkt að boða til „kaffispjalls“ í Nýsköpunarsetrinu að Miðbraut 11 í Búðardal þann 3. febrúar nk. á milli kl. 16:00 og 18:00 þar sem nefndarmenn ásamt verkefnastjóra hátíðarinnar í ár, Ingibjörgu Grétu, yrði til skrafs og ráðagerða við áhugasama aðila um framkvæmd einstakra þátta hátíðarinnar.

 

Endilega mætum sem flest þriðjudaginn 3. febrúar kl. 16:00 og látum okkur þessa mikilvægu hátíð varða – það verður heitt á könnunni og vonandi lifandi og gott samtal.

 

Menningarmálanefnd Dalabyggðar

Meira

Klukkan

3. Febrúar, 2026 16:00 - 18:00(GMT+00:00)

Staðsetning

Nýsköpunar- og frumkvöðlasetur Dalabyggðar (Stjórnsýsluhúsi)

Miðbraut 11

Other Events

Get Directions