Stjörnuleikar – Allir með

08mar13:0014:00Stjörnuleikar – Allir með

Nánari upplýsingar

Stjörnuleikar „Allir með“ verða haldnir í nýja íþróttahúsinu okkar sunnudaginn 8. mars kl 13:00-14:00.

Sjörnuleikarnir eru samstarfsverkefni UDN, Dalabyggðar og svæðisfulltrúa íþróttahéraða á Vesturlandi.
Stjörnuleikarnir er skemmtilegur íþróttadagur fyrir börn og ungmenni að 18 ára aldri með sérþarfir sem og börn sem ekki hafa fundið sig í hefðbundu íþróttastarfi. Þetta er dagur fyrir leik, gleði og samveru þar sem öll fá að prófa hinar ýmsu íþróttagreinar. Frábært tækifæri fyrir börn sem hafa ekki fundið sig í hefðbundnu íþrótta- og tómstundastarfi að koma og prófa eitthvað nýtt og spennandi.

Fjölskylda og vinir velkomin!

Eftir kl 14.00 verður opið hús fyrir áhugasama að koma og prófa!

Meira

Klukkan

8. Mars, 2026 13:00 - 14:00(GMT+00:00)

Staðsetning

Íþróttamiðstöðin í Búðardal

Miðbraut 8

Other Events

Get Directions