Saga sveitarfélaga í Dölum

Innan marka Dalabyggðar hafa starfað sveitarfélög undir 13 heitum í 22 útfærslum vegna 8 breytinga á sveitarfélagsmörkum og stofnun nýrra við klofning eða sameiningu sveitarfélaga.

Skógarstrandarhreppur

Mörk Skógarstrandarhrepps fram á miðja 15. öld voru frá Narfeyri á Skógarströnd til Álfatraða í Hörðudal, en þá breyttust sýslumörk Snæfellsness- og Dalasýslu frá Skraumu til Gljúfurár (Þverá, Gunnarsstaðaá).

Mörk Skógarstrandarhrepps frá miðri 15. öld til 31. desember 1997 voru frá Narfeyri til Hólmláturs.

Hörðudalshreppur

Mörk Hörðudalshrepps fram á miðja 15. öld voru frá Ketilsstöðum til Ytri-Hrafnabjarga, en þá breyttust sýslumörk Snæfellsness- og Dalasýslu frá Skraumu til Gljúfurár (Þverá, Gunnarsstaðaá).

Mörk Hörðudalshrepps frá miðri 15. öld til 31. desember 1991 voru frá Gunnarsstöðum til Ytri-Hrafnabjarga.

Miðdalahreppur

Mörk Miðdalahrepps til 31. desember 1991 voru frá Þorgeirsstaðahlíð í Hörðudal til Harrastaða í Miðdölum, auk Skógsmúla í Haukadal.

Suðurdalahreppur

Suðurdalahreppur varð til við sameiningu Hörðudalshrepps og Miðdalahrepps.

Mörk Suðurdalahrepps frá 1. janúar 1992 til 10. júní 1994 voru frá Gunnarsstöðum í Hörðudal til Harrastaða í Miðdölum, auk Skógsmúla í Haukadal.

Haukadalshreppur

Mörk Haukadalshrepps til 10. júní 1994 voru frá Litla-Vatnshorni til Ytri-Þorsteinsstaða, að undanskildum Skógsmúla á Þverdal sem tilheyrði Miðdalahreppi.

Laxárdalshreppur

Mörk Laxárdalshrepps til 10. júní 1994 voru frá Lækjarskógi til Ljárskóga.

Hvammshreppur

Mörk Hvammshrepps til 10. júní 1994 voru frá Glerárskógum til Rauðbarðaholts.

Fellsstrandarhreppur 

Mörk Fellsstrandarhrepps til 1772 voru frá Hafursstöðum til Galtartungu. Þá var sá hluti Staðarfellssóknar sem var í Skarðsstrandarhreppi lagður til Fellsstrandarhrepps.

Mörk Fellsstrandarhrepps frá 1772 til 31. ágúst 1986 voru frá Hafursstöðum til Arnarbælis. Þegar Klofningshreppur klofnaði um Klofning voru bæir sunnan hans voru lagðir til Fellsstrandarhrepps.

Mörk Fellsstrandarhrepps frá 1. september 1986 til 10. júní 1994 voru frá Hafursstöðum til Klofnings.

Skarðsstrandarhreppur  

Mörk Skarðsstrandarhrepps til 1772 voru frá Kjarlaksstöðum á Fellsströnd til Skarðs á Skarðsströnd. Þeir bæir Staðarfellssóknar sem voru í Skarðsstrandarhreppi voru lagðir til Fellsstrandarhrepps og þeir sem bæir í Saurbæjarhreppi sem áttu kirkjusókn að Skarði voru lagðir undir Skarðsstrandarhrepp.

Mörk Skarðsstrandarhrepps frá 1772 til 31. desember 1917 vorum því Ormsstöðum til Ytri-Fagradals (Fagradalsá).

Klofningshreppur

Klofningshreppur varð til í ársbyrjun 1918 þegar Skarðsstrandarhreppur var aflagður og skipt upp í Klofningshrepp og Skarðshrepp.

Mörk Klofningshrepps voru frá 1. janúar 1918 til 31. ágúst 1986 frá Ormsstöðum til Ballarár. Klofningshreppur var aflagður 1986 og klofnaði þá um Klofning. Bæir sunnan Klofnings voru lagðir til Fellsstrandarhrepps og norðan til Skarðshrepps.

Skarðshreppur

Skarðshreppur varð til í ársbyrjun 1918 þegar Skarðsstrandarhreppur var aflagður og skipt upp í Klofningshrepp og Skarðshrepp.

Mörk Skarðshrepps frá 1. janúar 1918 til 31. ágúst 1986 voru frá Reynikeldu til Ytri-Fagradals. Árið 1986 klofnaði Klofningshreppur um Klofning og bæir norðan hans voru lagðir til Skarðshrepps.

Mörk Skarðshrepps frá 1. september 1986 til 10. júní 1994 voru frá Melum (Klofningi) til Ytri-Fagradals (Fagradalsá).

Saurbæjarhreppur

Mörk Saurbæjarhrepps til 1772 voru frá Hvalgröfum á Skarðsströnd til Kleifa í Gilsfirði. Þá voru þeir bæir í Saurbæjarhreppi sem áttu kirkjusókn að Skarði lagðir til Skarðsstrandarhrepps.

Mörk Saurbæjarhrepps frá 1772 til 9. júní 2006 voru frá Fagradalstungu í Saurbæ til Kleifa í Gilsfirði.

Dalabyggð

Mörk Dalabyggðar frá 11. júní 1994 til 31. desember 1997 voru frá Gunnarsstöðum í Hörðudal (Gljúfurá) til Ytri-Fagradals á Skarðsströnd (Fagradalsá). Skógarstrandarhreppur sameinaðist Dalabyggð í ársbyrjun 1998.

Mörk Dalabyggðar frá 1. janúar 1998 til júní 2006 voru frá Narfeyri á Skógarströnd til Ytri-Fagradals á Skarðsströnd (Fagradalsá). Saurbæjarhreppur sameinaðist Dalabyggð 10. júní 2006.

Mörk Dalabyggðar frá 10. júní 2006 voru frá Narfeyri á Skógarströnd til Kleifa í Gilsfirði.

 

Breytingar á sveitarfélögum

Um miðja 15. öld breyttust sýslumörk Snæfellsness- og Dalasýslu frá Skraumu til Gljúfurár (Þverá, Gunnarsstaðaá) og þar með hreppamörk Skógarstrandar- og Hörðudalshreppa.

Árið 1772 breyttust hreppamörk Fellsstrandarhrepps, Skarðsstrandarhrepps og Saurbæjarhrepps.

Þann 1. janúar 1918 klofnaði Skarðsstrandarhreppur í Klofningshrepp og Skarðshrepp.

Þann 1. september 1986 klofnaði Klofningshreppur um Klofning milli Fellsstrandarhrepps og Skarðshrepps.

Þann 1. janúar 1992 sameinuðust Hörðudalshreppur og Miðdalahreppur í Suðurdalahrepp.

Þann 11. júní 1994 sameinuðust Suðurdalahreppur, Haukadalshreppur, Laxárdalshreppur, Hvammshreppur, Fellsstrandarhreppur og Skarðshreppur í Dalabyggð.

Þann 1. janúar 1998 sameinuðust Dalabyggð og Skógarstrandarhreppur í Dalabyggð.

Þann 10. júní 2006 sameinuðust Dalabyggð og Saurbæjarhreppur í Dalabyggð.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei