BREK í Dalíu
08ágú21:0023:00BREK í DalíuBREK í Dalíu
Nánari upplýsingar
Hljómsveitin BREK heldur tónleika í Dalíu á Búðardal laugardaginn 8. ágúst kl. 21:00. Ný plata kemur út í haust og mun sveitin spila eitthvað af nýjum lögum í bland við
Nánari upplýsingar
Ný plata kemur út í haust og mun sveitin spila eitthvað af nýjum lögum í bland við efni af fyrri plötu, sem og léttar ábreiður.
BREK hefur vakið verðskuldaða athygli síðustu ár en sveitin var meðal annars tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna í flokki þjóðlagatónlistar tvö ár í röð og hlaut verðlaunin fyrir plötu ársins í þjóðlaga- og heimstónlist árið 2022 fyrir sína fyrstu plötu. Síðan þá hefur Brek komið fram víða um heim, á hátíðum m.a. í Bandaríkjunum, Finnlandi, Noregi, Danmörku og Írlandi.
Á tónleikum vilja meðlimir sveitarinnar skapa áhugaverða stemningu í hljóðfæraleik sínum, auk þess sem lögð er áhersla á fjölskrúðuga notkun íslenskrar tungu í textagerð.

Meira
Klukkan
8. ágúst, 2026 21:00 - 23:00(GMT+00:00)
Staðsetning
Dalía
Miðbraut 15