Shjówmenn sirkussýning og námskeið

10okt14:00Shjówmenn sirkussýning og námskeið

Nánari upplýsingar

Shjówmenn sirkussýning um sjómennskuna & opið sirkusnámskeið á BARNÓ. 

Haldið í salnum hjá Dalahótel að Laugum í Sælingsdal, laugardaginn 10. október kl. 14:00

Einhvers staðar lengst úti á ballarhafi eru tveir sirkuslistamenn að reyna að veiða hugmyndir. Þeir kasta á milli sín fiskileifum, djöggl áhöldum, hvössum augnaráðum, veiðineti og ýmsu fleira, og enginn veit hvert förinni er heitið. Í nýsirkussýningunni Shjówmenn kynnumst við tveimur trúðum sem takast á við efnisheim og menningararf sjómennskunnar með sprúðlandi leikgleði sirkuslistanna. Sýningin hentar áhorfendum á breiðum aldri og notast takmarkað við talað mál.

Að sýningu lokinni verður opið sirkusnámskeið – dótakassi með ýmsum sirkusáhöldum sem gestum og gangandi er frjálst að prófa. Sirkuslistafólk Hringleiks kennir lauflétta smiðju þar sem má stoppa við í styttri eða lengri tíma á meðan á smiðjunni stendur. Stór og smá geta hér leikið sér saman og lært ýmist að djöggla, snúa diskum eða að ná jafnvægi á veltibretti. Öll velkomin.
Viðburðurinn er ókeypis og er styrktur af Uppbyggingasjóði Vesturlands.
Dalahótel leggur til húsnæði vegna viðburðarins.

Meira

Klukkan

10. október, 2026 14:00(GMT+00:00)

Staðsetning

Laugar í Sælingsdal

Aðrir viðburðir