Haustfagnaður FSD 2026

23okt(okt 23)18:0024(okt 24)19:30Haustfagnaður FSD 2026

Nánari upplýsingar

Haustfagnaður Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu verður haldinn að vanda helgi fyrsta vetrardags.
Föstudagurinn 23. október
18:00 Hrútasýning sunnan varnargirðingar á Bæ í Miðdölum. Þar mæta glæsilegustu lambhrútar haustsins til sýningar og samanburðar. Jafnframt verður tækifæri til að sýna og sjá skrautlegustu gimbrarnar.
Laugardagurinn 24. október
11:00-16:00 Matar- og handverksmarkaður í Reiðhöllinni í Búðardal en þar verður hægt að komast í návígi við allt það sem Dalirnir hafa upp á að bjóða þegar kemur að mat og handverki. Í reiðhöllinni verður einnig veitingasala auk þess sem önnur fyrirtæki í landbúnaði verða á staðnum og kynna sínar vörur og þjónustu.
11:00 Hrútasýning norðan varnargirðingar í Reiðhöllinni í Búðardal. Þar verður seinni hluti sýningarinnar með efnilegustu hrútunum í Dalahólfi nyrðra. Jafnframt verður tækifæri til að sýna og sjá skrautlegustu gimbrarnar.
13:00 Íslandsmeistaramótið í rúning verður haldið og spennandi að sjá hver hreppir titilinn í ár. Sigurbjörn Árni Arngrímsson lýsir keppninni. Skráning á mótið fer fram á netfangið steinthor99@gmail.com eða síma 858-1999 til og með þriðjudagsins 20. október.
19:30 Sviðaveisla að Laugum í Sælingsdal
Sígilt hlaðborð sviða með tilheyrandi meðlæti, hjúin Regína Ósk og Svenni Þór verða veislustjórar kvöldsins og hljómsveitin Sunnan 6 spilar á balli í kjölfar veislunnar. Miðaverð 10.000 kr. Aldurstakmark 18 ára. Miðapantanir hjá Berghildi á Dunk á bep1101@hotmail.com eða 867-9772 til og með þri. 20. okt.
Þema ljósmyndakeppninnar í ár er „Sauðkindin að hausti til“. Nú er um að gera að smella af mynd þegar augnablikið kemur eða fara yfir þau augnablik sem hafa átt sér stað og senda inn mynd. Myndirnar sendist á netfangið skerdingar@gmail.com til og með þri. 20. október. Úrslitin verða kynnt og verðlaun veitt í reiðhöllinni 24. október.
Komum saman og höfum gaman!

Meira

Klukkan

23. október, 2026 18:00 - 24. október, 2026 19:30(GMT+00:00)

Staðsetning

Laugar í Sælingsdal

Aðrir viðburðir