Skyndihjálp 6 klst: Endurmenntun atvinnubílstjóra - Búðardal

15okt16:0022:00Skyndihjálp 6 klst: Endurmenntun atvinnubílstjóra - Búðardal

Nánari upplýsingar

Verð: 17.500 kr. (athugið endurgreiðslu stéttarfélaga)
Tími: 15. október 16:00 – 22:00
Staðsetning: Húsnæði Rauða krossins, Vesturbraut 12, 370 Búðardalur
Leiðbeinandi: Þórunn Björk Einarsdóttir

 

Nánar um námskeiðið

Námskeiðið er fyrir endurmenntun atvinnubílstjóra og er samkvæmt námskrá Samgöngustofu.

Markmið námskeiðisins er að veita þátttakendum tækifæri til upprifjunar á helstu viðfangsefnum skyndihjálpar með áherslu á verklega færni og tilfellaæfingar. Sú þekking, leikni og hæfni mun síðan geta nýst þátttakendum í að:
– Fyrirbyggja, bera kennsl á og bregðast við neyðartilfellum.
– Veita faglega aðstoð í neyðartilvikum slysa eða bráðra veikinda þar til viðbragðsaðilar mæta á vettvang og taka við aðstæðum.

Athugið að forsenda fyrir námskeiðinu er að þátttaka sé næg. Þátttakendur þurfa að vera skráð áður en námskeiðið hefst og ekki er tekið við skráningum á staðnum. Ef námskeiðið er fullt er ekki hægt að bæta við fleiri þátttakendum.

Ekki er boðið upp á veitingar svo fólk er hvatt til að taka með sér nesti.

Þátttökugjald er ekki endurgreitt ef styttra en þrír dagar eru í námskeið nema læknisvottorð liggi fyrir. Eftir að námskeiðið er hafið er þátttökugjaldið ekki endurgreitt.

Allar frekari upplýsingar í síma 570-4000 og á skyndihjalp@redcross.is

Meira

Klukkan

15. október, 2026 16:00 - 22:00(GMT+00:00)

Staðsetning

Rauða kross húsið

Vesturbraut 12

Aðrir viðburðir

Leiðarvísir