Klappleikir með Sigga&Ingibjörgu - BARNÓ
11okt11:00Klappleikir með Sigga&Ingibjörgu - BARNÓ
Nánari upplýsingar
Klappleikir með Sigga&Ingibjörgu er fjörug fjölskyldusmiðja þar sem áhersla er lögð á leik, samveru og tónlist með einföldum og skemmtilegum klappleikjum og söngvum. Einu hljóðfærin sem við þurfum að
Nánari upplýsingar
Klappleikir með Sigga&Ingibjörgu er fjörug fjölskyldusmiðja þar sem áhersla er lögð á leik, samveru og tónlist með einföldum og skemmtilegum klappleikjum og söngvum. Einu hljóðfærin sem við þurfum að taka með okkur erum við sjálf. Ókeypis aðgangur.
Haldið í Félagsheimilinu Dalabúð í Búðardal, hefst kl.11:00
Klappsmiðjan er tilvalin leið fyrir börn að njóta tónlistar, hreyfingar og samveru.
Fjölskylduvænt og frítt – öll hjartanlega velkomin! Ókeypis aðgangur.
Sigurður Ingi Einarsson og Ingibjörg Fríða Helgadóttir eru reyndir smiðjuleiðbeinendur og tónlistarfólk. Hann er slagverksleikari og hún er söngkona og saman munu þau leiða þátttakendur í klappi, stappi og söng.
Öll börn og fullorðnir fara syngjandi heim með nýja leiki sem vekja gleði og kátínu!
Aldur: 4-10 ára og fullorðnir (yngri og eldri systkini velkomin með!)
Tungumál: Smiðjan fer að mestu fram á íslensku en aðgengileg fjölskyldum með önnur móðurmál.
Meira
Klukkan
11. október, 2026 11:00(GMT+00:00)
Staðsetning
Dalabúð
Miðbraut 8