Ljósmynd: Sigmundur Geir Sigmundsson

Félagsstarf eldri borgara

 

Félag eldri borgara í Dalabyggð og Reykhólahreppi stendur fyrir fjölbreyttu félagsstarfi í þessum tveimur sveitarfélögum.

Lög, félag eldri borgara.

Hvetjum 60 ára+ og aðstandendur að gerast meðlimir að Facebook hóp félagsins sem heitir:
Félag eldri borgara í Dalabyggð og Reykhólahreppi.   <— smellið hér.

Nýir félagar velkomnir 60+!
Steinunn Lilja tekur við skráningu nýrra félaga í síma: 830-0031.

Hreyfing

Gönguhópurinn Stormur gengur frá Rauða kross húsinu kl. 10.30 á mánudögum og föstudögum. Gangan endar á góðum kaffisopa og spjalli við heimilisfólkið á Silfurtúni á mánudögum en í Rauða kross húsinu á föstudögum.

Boccia: Boccia verður spilað í nýju Íþróttamiðstöðinni í Búðardal klukkan 13:30 – 15:30 á eftirfarandi dagsetningum: 8. október, 22. október, 5. nóvember og 19. nóvember.

Líkamsræktartímar: Lína verður með líkamsræktartíma í nýju Íþróttamiðstöðinni í Búðardal alla mánudaga og miðvikudaga kl. 14:30 fyrir 60+.

67 ára og eldri með lögheimili í Dalabyggð fá heilsukort án endurgjalds í nafni “gott að eldast í Dölum”. Kortið veitir aðgang að sund og líkamsrækt í íþróttmiðstöðinni í Búðardal.

 

Dagskrá félagsins

 

Dagsetning   Staðsetning Tími
17. september Bingó Silfurtún 14:00
1. október Félagsvist Tjarnarlundi 14:00
15. október Söngstund Barmahlíð 14:00
29. október Valdís RK-húsið 14:00
12. nóvember Söngstund Silfurtún 14:00
26. nóvember Bingó Barmahlíð 14:00
3. desember Félagsvist RK-húsið 14:00
10. desember Jólasöngstund Silfurtúni 14:00

 

Lagt af stað frá Silfurtúni kl 13.00 þegar farið verður í Tjarnalund og Barmahlíð

Steinunn Lilja tekur við skráningu nýrra félaga í síma 830-0031

Athugið að öll dagskrá hér er birt með fyrirvara um breytingar.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • JáNei