Dalabyggð veitir íbúum sínum margskonar þjónustu. Bæði með eigin starfsemi og í samvinnu við önnur sveitarfélög.
Auðarskóli rekur leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla í Búðardal.
Skrifstofur sveitarfélagsins eru í stjórnsýsluhúsinu, Miðbraut 11, Búðardal. Þar er einnig til húsa Héraðsbókasafn Dalasýslu, Héraðsskjalasafn Dalasýslu, viðvera félagsþjónustunnar og skrifstofa byggingafulltrúa.
Endurvinnslustöð og áhaldahús eru við Vesturbraut í Búðardal.
Höfn er í Skarðsstöð á Skarðsströnd og smábátahöfn í Búðardal.
Sveitarfélagið á Eiríksstaði í Haukdal og Vínlandssetur í Búðardal, en reksturinn er leigður út.
Auk starfsemi sveitarfélagsins er margs konar önnur þjónusta í boði fyrir íbúa sveitarfélagsins. Í sveitarfélaginu eru m.a. heilsugæsla, verslun, veitingasala, hraðbanki, vínbúð, flutninga- og bifreiðaþjónusta, iðnaðarmenn, blómabúð, líkamsræktaraðstaða og margt fleira.
Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband á dalir@dalir.is eða í síma 430-4700.