Hér má finna upplýsingar um byggingarfulltrúa, byggingarleyfi, ferli umsókna, eftirlit og gjaldskrár.
Byggingarfulltrúi
Grettir Örn Ásmundsson er byggingarfulltrúi fyrir Árneshrepp, Dalabyggð, Kaldrananeshrepp, Reykhólasveit og Strandabyggð.
Byggingarfulltrúi er með starfsstöð á skrifstofu Strandabyggðar, en með viðveru á skrifstofu Dalabyggðar alla föstudaga ásamt fyrsta og þriðja miðvikudag í mánuði og á skrifstofu Reykhólahrepps fyrsta fimmtudag í mánuði. Með fyrirvara um veður og færð.
Sími byggingarfulltrúa er 451 3517 (á milli kl. 10 – 14) og netfangið er byggingafulltrui@strandabyggd.is.
Embætti byggingarfulltrúa er starfrækt samkvæmt skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997 og reglugerðum þeim tengdum.
Óheimilt er, samkvæmt skipulags- og byggingarlögum, að grafa grunn, reisa hús, rífa hús, breyta því, burðarkerfi þess, formi, svipmóti eða notkun þess eða gera önnur mannvirki, nema að fengnu leyfi viðkomandi sveitarstjórnar.
Framkvæmdir skulu vera í samræmi við staðfest aðalskipulag og samþykkt deiliskipulag. Byggingarleyfi felur í sér samþykkt aðaluppdrátta og framkvæmdaáforma eða samþykkt á breyttri notkun húss.
Auk útgáfu byggingarleyfa annast embættið yfirferð og samþykkt séruppdrátta, úttektir, samþykkt á byggingarstjórum, skráningu iðnmeistara á verk, fasteignaskráningu, yfirferð eignaskiptayfirlýsinga og gefur umsagnir vegna starfs- og veitingaleyfa.
Þá varðveitir byggingarfulltrúi uppdrætti af húsum í sveitarfélaginu og geta allir fengið ljósrit af þeim gegn hóflegu gjaldi.
Byggingarfulltrúi veitir fúslega faglegar ráðleggingar bæði í viðtals- og símatímum.
Umsóknir um byggingarleyfi
Nú er einnig hægt að skila inn umsókn á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar: Byggingarleyfi
Sækja skal um byggingarleyfi með góðum fyrirvara þar sem umfjöllun um umsóknir getur tekið nokkrar vikur. Óheimilt er að hefja framkvæmdir áður en byggingarleyfi hefur verið gefið út.
Ferill umsókna
Eftirlit
Gjaldskrár
Ítarefni
- Eyðublöð
- Gjaldskrá fyrir byggingar- þjónustu- og framkvæmdagjöldum í Dalabyggð
- Skipulagslög nr. 123/2010
- Lög nr. 160/2010, um mannvirki
- Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
- Um byggingarleyfi á vef HMS
- Byggingareglugerð nr. 112/2012
- Reglugerð nr. 1068/2010, um byggingaröryggisgjald
- Skipulagsstofnun