Hér á síðunni er að finna upplýsingar um aðalskipulag, deiliskipulag og svæðisskipulag Dalabyggðar.
Aðalskipulag
Sveitarfélög skulu á hverjum tíma hafa í gildi aðalskipulag. Sveitarstjórn ber ábyrgð á gerð og endurskoðun aðalskipulags. Afgreiðsla á svæðis- og aðalskipulagi er ávallt háð samþykki sveitarstjórnar. Í aðalskipulagi er lagður grundvöllur fyrir gerð deiliskipulags varðandi landnotkun, takmarkanir á landnotkun, samgöngu- og þjónustukerfi og byggðamynstur, þ.m.t. þéttleika byggðar.
Kortasjá Aðalskipulags Dalabyggðar
Hægt er að skoða stafræna útgáfu gildandi aðalskipulags Dalabyggðar með því að kveikja á „Aðalskipulag“ þekjunni á kortasjá Dalabyggðar.
Þegar smellt er á á svæði eða punkta opnast gluggi með skipulagsákvæðum þess úr greinargerð.

Aðalskipulag Dalabyggðar 2020 – 2032
Aðalskipulag Dalabyggðar 2020-2032 – Greinargerð
Aðalskipulag Dalabyggðar 2020-2032 – Umhverfismatsskýrsla
Aðalskipulagsuppdráttur 4/5 og 5/5
Deiliskipulag
Unnið er að nýju deiliskipulagi fyrir Búðardal – hafir þú spurningar varðandi deiliskipulag er hægt að hafa samband á skipulag@dalir.is
Í aðalskipulagi eru forsendur fyrir gerð deiliskipulags. Deiliskipulag nær til einstakra svæða og reita innan sveitarfélagsins og er nánari útfærsla á stefnu og ákvæðum aðalskipulags.
Sveitastjórn ber ábyrgð á og annast gerð þess en það getur einnig verið unnið af landeigendum og framkvæmdaraðilum og á kostnað þeirra. Í deiliskipulagi er kveðið á um lóðastærðir, byggingarreiti, byggingarmagn, húsagerð, umferðarkerfi, útivistarsvæði og fjölda bílastæða.
Deiliskipulög í Dalabyggð
Hægt er að skoða gildandi deiliskipulög með því að kveikja á „Deiliskipulag“ þekjunni á kortasjá Dalabyggðar.

Þekjan byggir á vefsjá Skipulagsstofnunar, en þar gæti vantað sum eldri deiliskipulög. Ábendingar um slíkt sendist á skipulag@dalir.is.
Öll skipulagsmál Dalabyggðar í vinnslu má skoða á Skipulagsgátt. Þar má einnig skoða feril tillagna (ný skipulög og breytingar) síðan gáttin var tekin í notkun 2023.
Svæðisskipulag
Í svæðisskipulaginu er sett fram framtíðarsýn fyrir sveitarfélögin þrjú sem lýsir þeim árangri sem þau vilja ná á næstu 15 árum. Til að framfylgd svæðiskipulagsins verði sem markvissust er gert ráð fyrir að unnin verði framkvæmdaáætlun til tveggja eða þriggja ára.
Sameiginleg áætlun Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar um byggðarþróun m.t.t. landbúnaðar, sjávarnytja og ferðaþjónustu, var staðfest af skipulagsstofnun 5. júní 2018.